VR
VR

VR á Egilsstöðum

Hefur þú auga fyrir smáatriðum og gaman af því að aðstoða fólk?

VR leitar að þjónustulunduðum og nákvæmum einstaklingi til starfa við afgreiðslu umsókna í sjóði VR á skrifstofu félagsins á Egilsstöðum.

Um er að ræða 100% starf og er vinnutíminn frá kl. 8:30- 16:00 alla virka daga. Minna starfshlutfall kemur til greina. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni

Starfið felst fyrst og fremst í móttöku, yfirferð og afgreiðslu rafrænna umsókna um styrki í sjóði VR. Í því felst meðal annars að fara yfir gögn og upplýsingar sem fylgja umsóknum og meta hvort umsóknir uppfylli skilyrði sjóða til styrkveitinga.

Starfið felur einnig í sér samskipti við félagsfólk og fyrirtæki, meðal annars vegna gagnaöflunar, fyrirspurna og leiðbeininga um umsóknir og reglur sjóða VR.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • hefur gott vald á íslensku og ensku,
  • býr yfir góðri stafrænni hæfni og reynslu af notkun helstu tölvuforrita,
  • er nákvæmur og skipulagður í vinnubrögðum,
  • á auðvelt með að setja sig inn í reglur og skilyrði og vinna út frá þeim,
  • er jákvæður, lausnamiðaður og á gott með samskipti við fjölbreyttan hóp fólks.

Um VR

VR er stærsta stéttarfélag landsins með rúmlega 40.000 félaga. Skrifstofur félagsins eru á Akranesi, Egilsstöðum, Selfossi, í Reykjanesbæ, Reykjavík og Vestmannaeyjum.

Sótt er um starfið á Alfreð, www.alfred.is, eða með tölvupósti á [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026.

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og gert er grein fyrir þeirri reynslu og færni sem umsækjandi telur nýtast í starfinu.

Umsjón með ráðningu hefur Þórarinn Þórsson, sviðsstjóri þjónustusviðs VR, [email protected].

Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur4. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kaupvangur 3B, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar