Vélrás
Vélrás

Starfsmaður í verkstæðismóttöku

Vegna aukinna umsvifa leitum við að öflugum einstaklingi til starfa í verkstæðismóttöku Vélrásar.
Starfið felst meðal annars í móttöku viðskiptavina, samskiptum við viðskiptavini, skipulagningu verkefna, reikningagerð og öðrum tilfallandi verkefnum tengdum daglegum rekstri verkstæðisins. Starfið snýr einkum að þjónustu við smærri viðskiptavini og krefst góðrar þjónustulundar og skipulagshæfni. Starfsstöðin er í Klettagörðum, 104 Reykjavík.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er þjónustulipur og á auðvelt með samskipti
  • Er skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum
  • Hefur góða tölvukunnáttu
  • Nýtur þess að vinna í lifandi og fjölbreyttu umhverfi
  • Hefur reynslu af þjónustu- eða skrifstofustörfum

Vinnutími:
Vinnutími er á vöktum þar sem önnur hver vika er frá kl. 08:00-16:00 og hin frá kl. 09:00-17:00.

Um VélRás
VélRás ehf. er vélaverkstæði sem hefur sérhæft sig í þjónustu við eigendur vinnuvéla og vörubíla á umliðnum árum. Starfsmenn fyrirtækisins búa yfir áralangri og sérhæfðri reynslu til að fást við flest þau verkefni sem koma hjá viðskipvinum okkar. Vélrás hefur yfir að ráða 5.000 m2 vel útbúnu verkstæði ásamt sérútbúnum þjónustubílum til að veita fulla þjónustu á vettvangi hvar á landi sem er.
VélRás er systurfélag Vélanaust og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur6. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)