Arnarlax ehf
Arnarlax ehf
Arnarlax ehf

Gæði, fiskeldi og umbætur, er þetta eitthvað fyrir þig?

*English below

Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að styrkja gæðateymi Arnarlax. Starf Gæðafulltrúa Arnarlax snýr að gæðamálum í sjókvíaeldi og seiðaeldi og felur jafnframt í sér verkefni þvert á starfsemi fyrirtækisins.

Gæðafulltrúi heyrir undir gæðastjóra og vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki. Við leitum að einstaklingi sem vill vera í góðum tengslum við starfsemina, vinna með fólki og taka virkan þátt í að þróa og bæta verklag.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirfylgni með verklagi, skjölun, skráningum og gæðakröfum
  • Skráning og eftirfylgni frávika, úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða 
  • Þátttaka í áhættumati og eftirfylgni smitvarna
  • Þátttaka í innleiðingu og eftirfylgni með lögbundnum kröfum, stöðlum og vottunum, m.a. ASC
  • Undirbúningur og þátttaka í innri og ytri úttektum
  • Reglulegar úttektir á starfsstöðvum fyrirtækisins
  • Fræðsla og stuðningur við starfsfólk varðandi gæðamál og verklag
  • Þátttaka í þróun gæðakerfis og stöðugum umbótum 

Starfið er ekki eingöngu skrifstofustarf. Reglulegar heimsóknir á starfsstöðvar sjódeildar og seiðaeldis eru mikilvægur hluti starfsins og ferðalög innan starfssvæðis fyrirtækisins því hluti af starfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fiskeldis, sjávarútvegs, líffræði, gæðastjórnunar eða sambærilegu, er kostur
  • Reynsla úr fiskeldi og/eða gæðastarfi er kostur
  • Þekking á gæðakerfum, innri úttektum eða vottunarstöðlum er kostur
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðað hugarfar
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir
  • Góð enskukunnátta ásamt góðri almennri tölvukunnáttu er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í vaxandi atvinnugrein
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun gæðastarfs Arnarlax
  • Fjölbreytt starfsumhverfi og innsýn í allt eldisferlið
  • Tækifæri til faglegs þroska og aukinnar þekkingar
  • Öflugt samstarf þvert á deildir og starfsstöðvar
  • Góð vinnuaðstaða og sveigjanleiki í starfi
  • Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Strandgata 1, 465 Bíldudalur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar