

Ritari á leikskóla
Leikskólinn Sjónarhóll leitar að jákvæðum, skipulögðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf ritara á leikskóla. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum, kann að halda utan um fjölbreytt verkefni og vill taka þátt í að skapa gott og hlýlegt starfsumhverfi fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
Starfið er fjölbreytt og mikilvægt í daglegu starfi leikskólans. Ritari er oft fyrsti tengiliður foreldra, gesta og samstarfsfólks og gegnir lykilhlutverki í því að daglegt starf gangi vel fyrir sig. Um er að ræða nýtt starf
Um starfið
Ritari leikskólans sinnir fjölbreyttum verkefnum sem styðja við stjórnendur, starfsfólk og daglegan rekstur skólans. Í starfinu reynir á góða samskiptahæfni, skipulag, nákvæmni og jákvætt viðmót. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, leysa úr erindum og halda utan um mörg verkefni í einu.
• Sinna móttöku, símsvörun og almennri þjónustu við foreldra, starfsfólk, börn og gesti.
• Miðla upplýsingum, svara erindum og halda utan um dagleg samskipti fyrir leikskólann.
• Annast skjalavinnslu, heimasíðu, skráningar í gagnavinnslukerfi og varðveislu upplýsinga í samræmi við verklag og persónuvernd.
• Uppfæra dagatöl, fréttir, upplýsingar og kynningarefni eftir þörfum.
• Sinna innkaupum, vörumóttöku og birgðahaldi vegna daglegs rekstrar.
• Fylgja eftir verkefnum tengdum húsnæði, viðhaldi, sameiginlegum rýmum og samskiptum við þjónustuaðila.
• Taka þátt í utanumhaldi sem tengist öryggis-, heilbrigðis- og eldvarnamálum.
• Styðja stjórnendur og starfsfólk við skipulag, fundi og önnur rekstrartengd verkefni.
• Góð samskipta- og þjónustuhæfni.
• Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð tölvukunnáttu og hæfni til að vinna í upplýsingakerfum.
• Ábyrgðarkennd og virðingu fyrir trúnaði.
• Frumkvæði, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
• Framhaldsskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Reynsla af skrifstofu-, þjónustu- eða ritarastörfum er kostur.
Heilsustyrkur
Íslenska










