
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
LV er leiðandi lífeyrissjóður sem byggir trausta fjárhagslega framtíð sjóðfélaga. Fjármunir sjóðfélaga eru ávaxtaðir með gagnssæjum og ábyrgum hætti med samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Hjá sjóðnum starfar 56 manna samhent liðsheild þar sem hver og einn nær að nýta hæfileika sína og þekkingu til að sinna krefjandi verkefnum. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, góð samskipti, frumkvæði og hæfni til að laga sig að síbreytilegu umhverfi.
LV býður upp á góða starfsaðstöðu þar sem ríkir góður starfsandi í starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars lögð á jafnrétti og jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. LV hefur hlotið jafnlaunavottun.
Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) leitar að öflugum sérfræðingi til að þróa, reka og byggja áfram upp vöruhús gagna sjóðsins.
Starfið er lykilhlutverk á upplýsingatæknisviði. Unnið er með gögn úr öllum kjarnakerfum sjóðsins og þau gerð aðgengileg fyrir greiningar, skýrslugjöf og ákvarðanatöku.
Verkefnin eru fjölbreytt og unnin í nánu samstarfi við sérfræðinga í eignastýringu, áhættustýringu, fjármálum og rekstri. Starfinu fylgir tækifæri til að móta framtíð gagnastjórnunar hjá einum stærsta lífeyrissjóði landsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta framtíðarsýn og stefnu LV um vöruhús gagna, gagnalausnir og skýjalausnir.
- Þróa og viðhalda vöruhúsi gagna, þar á meðal gagnalíkönum, gagnavinnslum og samþættingarlausnum.
- Vakta gagnavinnslur, greina bilanir og vinna að úrbótum.
- Tryggja gæði, rekjanleika og samræmi gagna og þróa gagnastjórnun, skjölun og öryggisferla.
- Skilgreina gagnakröfur og þróa nýjar greiningarlausnir í samstarfi við svið sjóðsins.
- Þróa og styðja við Power BI-lausnir, gagnasett og sjálfsafgreiðslu í greiningum.
- Taka þátt í innleiðingu nýrra kerfa og gagnatenginga og í nýtingu nýrrar tækni, svo sem gervigreindar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum.
- Reynsla af þróun og rekstri vöruhúsa gagna, gagnavinnslum (ETL/ELT) eða samþættingarlausnum.
- Góð þekking á SQL og gagnalíkönum.
- Reynsla af Power BI eða sambærilegum greiningarlausnum er kostur.
- Þekking á Microsoft Fabric og Azure er kostur.
- Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð og færni í greiningu og lausnaleit.
- Þjónustulund, samstarfshæfni og hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran hátt.
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Senior Software Engineer
Laki Power

Robotics Software Engineer
Laki Power

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

CapEx PMO Systems Specialist
Alvotech hf

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Business Central forritari
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf

AI Engineer
50skills