
Fagkaup ehf
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu. Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Ísleifur, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg, DS lausnir, K. Þorsteinsson & Co. og Hagblikk.
Rúmlega 300 starfsmenn vinna hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarljósi.

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Viltu móta hvernig gögn og gervigreind umbreyta íslenskum iðnaði?
Fagkaup leitar að öflugum verkefnastjóra sem vill leiða uppbyggingu á gagnadrifnum rekstri. Þetta er lykilhlutverk í stafrænu umbreytingarferli þar sem markmiðið er skýrt: betri gögn, betri ákvarðanir og hagnýt gervigreind sem skilar raunverulegu virði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skilgreina og leiða verkefni tengd grunngögnum (Master Data): vörum, birgjum, viðskiptavinum o.fl.
- Mæla og bæta gagnagæði með skýrum mælikvörðum
- Leiða verkefni sem snúa að samþættingu kerfa og gagnaflæði milli þeirra
- Byggja upp hagnýtar gervigreindarlausnir sem styðja sölu og þjónustu
- Samræma vinnu milli rekstrar, upplýsingatækni og ytri samstarfsaðila
- Leiða innleiðingu í nánu samstarfi við upplýsingatæknistjóra
Umhverfið
Business Central · Power BI · Data Warehouse · Azure · Microsoft Fabric
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu
- Bakgrunnur í hugbúnaðarþróun eða forritun (t.d. SQL, Python, API-ar)
- Reynsla af verkefnastjórnun, helst í gagna-, BI- eða gervigreindarverkefnum
- Skilningur á grunngögnum, gagnagæðum og gagnastjórnun (data governance)
- Hæfni til að greina þarfir reksturs og útfæra þær í skýrar tæknilegar lausnir
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og þvert á deildir, sem og með ytri samstarfsaðilum
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af Microsoft-umhverfi og innleiðingu gervigreindarlausna er kostur
Markmið starfsins
- Veruleg og mælanleg bæting gagnagæða
- Lausnir sem hafa sýnileg áhrif í daglegum rekstri
- Markviss skref sem byggja upp langtíma samkeppnisforskot
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta
- Niðurgreiddur hádegismatur
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HugbúnaðarprófanirSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaTölvuöryggiVerkefnastjórnun í upplýsingatækniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Business Central forritari
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

AI Engineer
50skills

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

AI Solutions Engineer
atNorth

Graphics Programmer
Fenris Creations

Göng og brú leitar að Lausnahönnuði
Göng og brú

Forstöðumaður Stafrænnar þróunar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Senior Software Engineer, Simulation Platform
Aveo ehf.