
Samherji fiskeldi ehf.
Samherjji fiskeldi kemur að öllum stigum eldis og vinnslu, all frá hrognum til neytenda. Samherji fiskeldi ehf. rekur eina klakfiskastöð að Sigtúnum í Öxarfirði, eina klakstöð fyrir hrogn að Núpum í Ölfusi, þrjár seiðastöðvar og tvær áframeldisstöðvar fyrir bleikju, aðra á Stað við Grindavík og hina að Vatnsleysuströnd. Einnig rekur fyrirtækið eina strandeldistöð fyrir lax að Núpsmýri í Öxarfirði og tæknivædda vinnslu í Sandgerði. Allt eru þetta landeldisstöðvar sem nýta jarðvarma og notast við borholuvatn, ýmist ferskt eða ísalt, við framleiðslu á hágæða eldisfiski.
Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi leitar að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að ganga til liðs við upplýsingatæknisvið fyrirtækisins. Fram undan eru spennandi tímar. Fyrirtækið er að byggja nýjan Eldisgarð á Reykjanesi og rekur auk þess landeldisstöðvar og fiskvinnslur víða. Því fylgja fjölmargar innleiðingar á nýjum kerfum og tæknilausnum, ásamt þjónustu og rekstri á fjölbreyttu kerfisumhverfi.
Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á tækni, vilja læra og þróast í starfi og hafa gaman af fjölbreyttum verkefnum. Við leitum ekki endilega að einstaklingi með margra ára reynslu. Áhugi, jákvætt viðhorf og vilji til að takast á við nýjar áskoranir skipta mestu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innkaup, uppsetning og umsjón með tölvubúnaði og öðrum tæknibúnaði fyrir starfsfólk
- Notendaþjónusta og almenn tölvuaðstoð við starfsfólk á öllum starfsstöðvum
- Þjónusta og rekstur á kerfum fyrirtækisins
- Þátttaka í innleiðingu nýrra kerfa í tengslum við uppbyggingu Eldisgarðs á Reykjanesi
- Þátttaka í innleiðingu gervigreindarlausna og uppbyggingu upplýsingatækniinnviða
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði upplýsingatækni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis kerfisstjórnun, tölvunarfræði eða sambærilegt nám
- Þekking á Microsoft IT umhverfi (Windows, Microsoft 365, Entra ID)
- Þekking á Microsoft Intune er kostur
- Reynsla af notendaþjónustu eða IT störfum er kostur, en nýútskrifaðir eru einnig hvattir til að sækja um
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Sveigjanleiki og vilji til að takast á við mjög fjölbreytt verkefni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi starf í fyrirtæki í örum vexti
- Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu frá grunni og innleiðingu nýrra kerfa
- Tækifæri til að læra og þróast í starfi, með stuðningi og þjálfun
- Gott starfsumhverfi og samheldinn hóp
Auglýsing birt29. september 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Senior Software Engineer
Laki Power

Robotics Software Engineer
Laki Power

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

CapEx PMO Systems Specialist
Alvotech hf

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Starfsmaður í tæknideild Smárabíós
Smárabíó

Senior Linux Systems Engineer
1984 ehf

Senior Storage Engineer – Ceph / Distributed Storage
1984 ehf

Kerfisstjóri
Hafnarfjarðarbær