
Göng og brú leitar að Lausnahönnuði
Við leitum að reyndum hugbúnaðarsérfræðingi sem sér um að leiða uppbyggingu hugbúnaðarlausna félagsins. Viðkomandi ber ábyrgð á hugbúnaðarþróun frá þarfagreiningu til reksturs og heyrir undir framkvæmdastjóra tækni og viðskipta
Gerð er krafa um hagnýta reynslu af gervigreind, bæði sem verkfæri við hugbúnaðargerð og sem hluta af lausnum og verkferlum félagsins.
-
Hanna og þróa bakendakerfi og notendaviðmót fyrir viðskiptavini, samstarfsaðila og starfsfólk.
-
Hanna API og gagnatengingar milli kerfa félagsins
-
Hönnun á gagnagrunnum fyrir lausnir og vöruhús gagna
-
Þróa vélnáms- og bestunarlíkön eftir þörfum félagsins
-
Byggja upp Mínar síður
-
Greina verkferla með starfsfólki og finna tækifæri til umbóta þar sem það bætir þjónustu, dregur úr villum eða sparar tíma.
-
Ber ábyrgð á upplýsingaöryggi lausna sem þróaðar eru innanhúss.
-
Vinna með rekstraraðilum og birgjum að samþættingum og úrlausn tæknilegra mála.
-
Samskipti við ráðgjafa í hugbúnaðarþróun
-
Önnur tilfallandi störf á sviðinu
-
Mikil reynsla af hugbúnaðarþróun og lausnum sem hafa farið í rekstur.
-
Reynsla af að nýta gervigreind við daglega þróun, þ.e. hönnun, forritun, prófanir og skjölun. Geta til að yfirfara kóða sem gervigreind býr til og taka ákvarðanir.
-
Góð þekking á hugbúnaðararkitektúr og hönnun kerfa.
-
Hagnýt reynsla af þróun og rekstri hugbúnaðar í Microsoft Azure, þ.m.t. aðgangsstýringu, vöktun og kostnaðarstýringu.
-
Reynsla af full-stack þróun.
-
Góð þekking á API-hönnun, gagnagrunnum og kerfissamþættingum.
-
Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að afmarka verkefni og skila lausnum í áföngum.
-
Góð samskiptahæfni og geta til að útskýra tæknileg mál á skýran hátt.
-
Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg reynsla.
Íslenska
Enska










