

Sérfræðingur í birgðastýringu og bakvinnslu
Öryggismiðstöðin leitar að öflugum og framsýnum starfsmanni á sviði velferðarlausna með áherslu á innkaup, birgðastýringu og bakvinnslu. Við viljum ráða einstakling sem er lausnamiðaður, drífandi, jákvæður, tilbúinn að taka virkan þátt í faglegri þróun og verða hluti af sterkri liðsheild.
Viðkomandi mun bera ábyrgð á innkaupum, skipulagi flutninga og birgðastýringu á sviði velferðarlausna ásamt því að styðja við annað starfsfólk sviðsins með bakvinnsluverkefnum. Þá falla gæðamál undir verksvið viðkomandi. Um er að ræða spennandi framtíðarstarf á öflugum vinnustað sem einkennist af vexti og framþróun.
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu á sviði öryggis-, velferðar- og bílastæðalausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
- Samskipti og samningagerð við innlenda og erlenda samstarfsaðila
- Innkaup, flutningur og vöruskil
- Yfirsýn yfir lagerhald og birgðastýring
- Bakvinnsla, úrvinnsla pantana og afhendingar
- Náin teymisvinna með öðrum sérfræðingum á sviði velferðarlausna og aðrar deildir innan fyrirtækisins
- Greiningarvinna á framlegð, verðlagningu og birgðum
- Aðstoð við tilboðs- og útboðsgerð
- Gæðamál og eftirlit
- Reynsla af sambærilegum störfum er mikill kostur
- Framúrskarandi tölvukunnátta. Þekking á Business Central og CRM kerfum er mikill kostur
- Reynsla af samskiptum við erlenda birgja, samningagerð og birgðastýringu er mikill kostur
- Menntun á sviði viðskiptafræði eða sambærilegt er kostur
- Skipulagshæfileikar og frumkvæði til að afla sér nýrrar þekkingar er nauðsynleg
- Hæfni í mannlegum samskiptum, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
- Framúrskarandi vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Íslenska
Enska










