Sagafilm
Sagafilm

Fjármálastjóri

Sagafilm leitar að metnaðarfullum og reynslumiklum fjármálastjóra sem vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu elsta og eins afkastamesta framleiðslufyrirtækis landsins.

Sem fjármálastjóri munt þú gegna lykilhlutverki í rekstri félagsins og vinna náið með framkvæmdastjóra, framleiðendum og öðrum stjórnendum að fjárhagslegri stjórnun, stefnumótun og þróun starfseminnar. Starfið sameinar fjármálastjórnun og þátttöku í fjölbreyttum framleiðsluverkefnum sem ná til áhorfenda á Íslandi og á alþjóðlegum mörkuðum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur sterkan viðskiptaskilning, nýtur þess að vinna með stjórnendum að lausnum og hefur áhuga á að starfa í umhverfi þar sem skapandi verkefni, fjármögnun og rekstur mætast.


Helstu verkefni

  • Ábyrgð á reikningshaldi, uppgjörum og fjárhagslegri upplýsingagjöf
  • Gerð rekstraráætlana, fjárhagsáætlana og sjóðstreymisspáa
  • Fjárhagsleg eftirfylgni með framleiðsluverkefnum og kostnaðareftirlit
  • Lausafjárstýring og samskipti við banka, fjármögnunaraðila og aðra hagsmunaaðila
  • Gerð stjórnendaupplýsinga, KPI-greininga og rekstrarskýrslna
  • Umsjón með skattamálum, endurgreiðslukerfum og styrkumsóknum
  • Þátttaka í stefnumótun, fjárfestingargreiningum og þróun nýrra verkefna
  • Ábyrgð á umbótum í ferlum, verklagi og innra eftirliti


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, reikningshalds eða sambærilegra greina
  • Reynsla af fjármálastjórnun
  • Góð þekking á uppgjörum, áætlanagerð og fjárhagslegri greiningu
  • Reynsla af lausafjárstýringu og samskiptum við fjármálastofnanir
  • Þekking og reynsla af fjármögnun
  • Sterk greiningarhæfni og viðskiptaskilningur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta


Um Sagafilm

Sagafilm er leiðandi framleiðslufyrirtæki á Íslandi og hluti af alþjóðlega afþreyingarfyrirtækinu Skybound Entertainment. Félagið framleiðir kvikmyndir, sjónvarpsþætti og afþreyingarefni fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað og vinnur með helstu streymisveitum, sjónvarpsstöðvum og dreifingaraðilum á Norðurlöndum og víðar

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní, 2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) og Auður Bjarnadóttir ([email protected]).

Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar