
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Viðskiptastjóri í Fjárstýringu
Fjárstýring gegnir lykilhlutverki í rekstri bankans – m.a. við fjármögnun starfseminnar, við stýringu efnahagsreiknings og ber ábyrgð á samskiptum við helstu hagsmunaaðila á fjármálamörkuðum. Nú leitum við að metnaðarfullum og drífandi viðskiptastjóra sem vill vinna á spennandi krossgötum fjármála, markaða og samskipta.
Í starfinu felst náið samstarf við sérfræðinga innan bankans, fjármálastofnanir og aðra viðeigandi aðila við að byggja upp og viðhalda traustum tengslum, halda utan um samskipti og sinna viðskiptastjórnun við fjármálastofnanir, krosssölu og stuðla að faglegri framkvæmd verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp, sækja og efla fagleg tengsl, viðskipti og samskipti við fjármálastofnanir og aðra viðeigandi aðila.
- Viðhalda heildaryfirsýn yfir samskipti, viðskipti og upplýsingagjöf til fjármálastofnana.
- Greina markaðsaðstæður, möguleg tækifæri og stuðla að betri ákvarðanatöku með gögnum, greiningum og rökstuðningi.
- Samvinna við innri hagsmunaaðila (t.d. viðskiptaeiningar, fjármálasvið, áhættustýringu, lögfræðideild og regluvörslu) til að tryggja vandaðan frágang og samræmda nálgun.
- Undirbúa kynningar, minnispunkta og/eða annað efni til nefnda/innri ákvörðunartöku eftir því sem við á.
- Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi, til dæmis vörustjórnun og gæðamál.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sterk greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður á skýran og sannfærandi hátt.
- Reynsla af störfum hjá fjármálafyrirtæki og af fjármálamörkuðum er kostur.
- Reynsla af viðskiptastýringu og að byggja upp viðskiptasambönd.
- Gagna- og tæknilæsi og færni í að tileinka sér nýja tækni í starfi (m.a. gervigreind).
- Frumkvæði, sjálfstæði, drifkraftur og skipulögð vinnubrögð eru mjög æskilegir eiginleikar.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Framúrskarandi samskiptafærni.
- Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniAlþjóðaviðskiptiÁreiðanleikiAðlögunarhæfniBreytingastjórnunDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiGreiningarfærniHeiðarleikiHugmyndaauðgiJákvæðniLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSamningagerðSjálfstæð vinnubrögðSjóðsstreymiSkipulagSveigjanleikiTeymisvinnaVandvirkniVerkefnastjórnunVinna undir álagiVörustjórnunÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjármálastjóri
Sagafilm

Viðskiptaþróunarstjóri
Klasi

Sölustjóri útflutnings
Samskip

Vilt þú taka þátt í að efla stöðu fyrirtækja á sviði verslunar og þjónustu?
Samtök Verslunar og þjónustu

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sumarævintýri með Eimskip á Grænlandi
Eimskip

Machine Learning Engineer
GreenFish

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu
Landsvirkjun

Lead Mechanical/Mechatronics Engineer - R&D
Eirr Medical

Sérfræðingur í fjármálum
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Verkefnastjóri/sérfræðingur
Vegagerðin

Bókari
Eignaumsjón hf