Norðurál
Norðurál
Norðurál

Sérfræðingur aðfangastýringar

Norðurál leitar að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings aðfangastýringar með áherslu á gagnastjórnun og viðskiptagreind. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. Í starfinu er lögð áhersla á gagnadrifin innkaup, lager- og birgðastýringu og viðskiptaþjónustu. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra aðfangastýringar og viðskiptaþjónustu. Starfsstöðin er bæði á Grundartanga og á skrifstofu Norðuráls í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Þróun, greining og samræming gagna í SAP

·       Viðhald og þróun lykilmælikvarða og skýrslna

·       Greiningar á birgðum, birgðahaldi og vöruflæði

·       Greiningar á birgjamarkaði, kostnaðarþróun og tækifærum til hagræðingar

·       Innleiðing og þróun á Master Data Management

·       Sjálfvirknivæðing og nýting gervigreindar

·       Samstarf og samvinna við erlenda sérfræðinga innan Century Aluminum

·       Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. að sviði tölfræði, verkfræði og viðskiptafræði

·       Reynsla af gagnagreiningu og viðskiptagreind

·       Reynsla af SAP eða öðrum ERP kerfum

·       Góð þekking á Power BI eða sambærilegum greiningarlausnum

·       Þekking á innkaupum, birgðastýringu eða aðfangakeðjum er kostur

·       Greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð

·       Samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi

·       Frumkvæði og umbótahugsun

·       Gott vald á íslensku og ensku

Fríðindi í starfi
  • Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar