
Sérfræðingur í landupplýsingum og gagnaumsjón.
Faxaflóahfnir leita að framsýnum einstaklingi á eigna og þróunarsvið
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
* Umsjón landupplýsingagrunns og vefsjár (ArcGIS),þ.m.t. innlestur gagna og uppfærslur.
* Umhirða, varsla og skráning tæknigagna og stuðningur við miðlun gagna.
* Teiknivinna, útfærsla og vinnsla gagna samkvæmt óskum á hverjum tíma.
* Eftirlit með að skjölun, verklag og meðferð gagna sé í samræmi við innri ferla sviðsins.
* Samvinna við fjármáladeild vegna breytinga á leigusamningum og skráningu gagna.
* Aðkoma að undirbúningi og utanumhaldi samninga, þinglýsinga og skipulagsmála eftir því sem við á.
* Annast önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla innan eðlilegs starfsviðs
Kröfur til starfsins
* Háskólamenntun eða viðeigandi menntun sem nýtist í starfi auk þekkingar á gagnagrunnum og skjalavörslu.
* Þekking eða reynsla af landupplýsingakerfum (GIS), s.s. ArcGIS, og vinnu með gagnagrunna er kostur.
* Hæfni til að vinna markvisst með gögn, viðhalda gæðum þeirra og fylgja verklagi við skráningu og vistun.
* Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymum sem og sjálfstætt.
* Góð tölvufærni og hæfni í að tileinka sér ný kerfi.
Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns á
starfsstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, á Akranesi, Grundartanga og í Borgarnesi.
Við viljum vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum en leggjum einnig áherslu
á þróun snjallra lausna og grænar hafnir.
Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu í Hafnarhúsinu - skrifstofu Faxaflóahafna, Tryggvagötu 17 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Garðar Jörundsson, sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs; [email protected]
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 28. júní n.k.







