
Markaðsstjórn með áherslu á leitarvélabestun, netauglýsingar og samfélagsmiðla
Við leitum fyrir umbjóðanda að aðila í markaðssetningu sem hefur brennandi áhuga á útliti fólks, fyrir kröftugt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Utanumhald vefsíðu
- leitarvélabestun
- Umsjón, gerð auglýsingaefnis og daglegt utanumhald samfélagsmiðla
- Eftirfylgni, greining markaðsárangurs og herferða auk skýrslugerða vegna samfélagsmiðla
- Val á miðlum m.t.t. markhópa, dreifingar og árangurs
- Spennandi starf sem hentar vel skipulögðum einstaklingi með brennandi áhuga á útliti fólks og sem þrífst í síbreytilegu og lifandi umhverfi.
- Regluleg samskipti við metnaðarfullt teymi í krefjandi og faglegu umhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og þekking á birtingum, stafrænni markaðssetningu, vefumsjón, leitarvélabestun og helstu markaðsgreiningatólum er skilyrði.
- Þekking á fjölmiðlamælingum, rannsóknum og markaðsgögnum er skilyrði.
- Reynsla af hreyfimyndatöku, ljósmyndun, stafrænni vinnslu myndefnis og / eða grafiískri hönnun er æskileg.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku bæði rit- og talmáli
- Frumkvæði, skapandi hugsun og gott auga fyrir framsetningu og frásögn
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni í teymisvinnu
Auglýsing birt10. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AuglýsingagerðEmail markaðssetningFacebookGagnagreiningGoogleHreint sakavottorðInstagramLeitarvélabestun (SEO)MarkaðsgreiningMarkaðsmálMarkaðsrannsóknirMarkaðssetning á netinuSkilgreining markhópaSnapchatVerkefnastjórnun í upplýsingatækniVörumerkjastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)






