
Veritas
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan, Fána, Distica, STOÐ og Vistor sem öll eiga það sameiginlegt að vera leiðandi á íslenskum heilbrigðismarkaði, hvert á sínu sviði. Hlutverk Veritas er að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækjanna með reynslu sinni og þekkingu.

Vilt þú sinna fjölbreyttum störfum innan fjármála og taka þátt í þróun til framtíðar?
Við hjá Veritas erum að bæta í teymið okkar og leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum innan fjármála- og rekstrarsviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefnin snúa að færslu fjárhagsbókhalds, afstemmingum, reikningagerð ásamt innheimtu. Einnig felur starfið í sér þátttöku í þróun fjármálaferla með það að markmiði að auka skilvirkni, bæta upplýsingaflæði og nýta framtíðartækni til hins ýtrasta með endurhönnun starfa og verklags.
Hjá Veritas færðu tækifæri til að starfa í framsæknu og tæknivæddu umhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, stöðugar umbætur og nýtingu stafrænna lausna sem auðvelda vinnuna, bæta gæði upplýsinga og styðja við betri ákvarðanatöku.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði eða önnur menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirknivæðingu og þróun vinnuferla
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og nákvæmni
- Reynsla af Business Central er kostur
- Greinandi hugsun og hæfni til að sjá tækifæri til einföldunar og umbóta
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
- Sálfræðistyrkur
- Samgöngustyrkur
- Mötuneyti, morgun- og hádegisverður
Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur8. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi einstaklinga - Egilsstaðir
Íslandsbanki

Skrifstofustjóri
Schindler

Verkefnisstjóri fjármála við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Starfskraftur afgreiðslu á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Senior Product Manager for Weighing & Grading
JBT Marel

Information Security Officer (Junior)
JBT Marel

Starf gjaldkera laust til umsóknar
Vopnafjarðarhreppur

Uppgjörsaðili á bókhaldsstofu
Skýrslur og skil

Starf á Fjármálasviði
Torcargo

Rekstrarstjóri verslunar og verkstæðis
Ljósameistarinn ehf

Finance Specialist
Dohop ehf.

Viðskiptastjóri - Erlendir markaðir
Avis og Budget