

Rekstrarstjóri verslunar og verkstæðis
Rekstrarstjóri óskast – einstakt tækifæri hjá Ljósameistaranum
Langar þig að leiða fyrirtæki í miklum vexti og hafa raunveruleg áhrif á framtíð þess?
Ljósameistarinn leitar að öflugum rekstrarstjóra sem tekur ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins. Við rekum sérverslun og verkstæði að Eldshöfða 16 og sérhæfum okkur í akstursljósum, vinnuljósum, blikkljósum og öðrum aukabúnaði fyrir bíla og atvinnutæki.
Helstu verkefni:
-
Dagleg stjórnun verslunar og verkstæðis.
- Almenn verslunarstjóra störf.
-
Umsjón með verslun, afgreiðsla og skipulag verkefna á verkstæði.
-
Samskipti við viðskiptavini og birgja.
-
Innkaup, lagerstýring og eftirfylgni með rekstri.
-
Þróun verkferla og þjónustu.
- Umsjón með samfélagsmiðlum og auglýsingum.
Eigandi verður áfram virkur í stefnumótun og fjármálum, en rekstrarstjóri fær mikið sjálfstæði og ábyrgð í daglegum rekstri.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Hefur reynslu af sölumennsku, rekstri og/eða stjórnun.
-
Er skipulagður, lausnamiðaður og sjálfstæður (tilbúinn að redda því sem þarf að redda).
-
Hefur góða leiðtogahæfileika og samskiptahæfni.
-
Hefur áhuga á bílum, ljósa- og aukabúnaði og getur leitað sér upplýsinga um þá eftir þörfum.
- Er tilbúinn að hugsa um rekstur fyrirtækisins eins og það sé hans eigið.
Við bjóðum:
-
Fjölbreytt og krefjandi starf.
-
Mikla ábyrgð og raunveruleg áhrif á vöxt og rekstur fyrirtækisins.
-
Öflugan grunn og fyrirtæki í hröðum vexti.
-
Samkeppnishæf laun eftir reynslu.
Ef þú vilt taka þátt í að byggja áfram upp eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sínu sviði viljum við heyra frá þér.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á: [email protected]
Íslenska
Enska










