

Forstöðumaður reikningshalds
Langar þig að hafa raunveruleg áhrif á þróun fjármála- og reikningshaldsmála hjá leiðandi fyrirtækjum á íslenskum bílamarkaði?
Inchcape á Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum forstöðumanni reikningshalds til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun bókhalds- og fjármála hjá Bílaumboðinu Öskju, Dekkjahöllinni, Landfara og Bílaumboðinu Unu.
Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í að tryggja áreiðanleg reikningsskil, styrkja innra eftirlit og styðja stjórnendur með vönduðum fjármálaupplýsingum. Starfið felur jafnframt í sér ábyrgð á þróun bókhalds, skattamála og innra eftirlits í samræmi við stefnu og staðla Inchcape.
Starfið veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun ferla, styrkja innra eftirlit og taka þátt í umbreytingar- og umbótaverkefnum í umhverfi þar sem fagmennska, samvinna og framþróun eru í forgrunni. Um er að ræða lykilstöðu sem vinnur náið með stjórnendum félaganna hér á landi og sérfræðingum innan alþjóðlegu Inchcape-samstæðunnar.
Félögin eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc, leiðandi fyrirtæki á sviði sölu og dreifingar bifreiða. Inchcape starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Með því að ganga til liðs við Inchcape á Íslandi verður þú hluti af öflugri alþjóðlegri samstæðu sem leggur áherslu á fagmennsku, þróun og árangur
Við leitum að einstaklingi sem er lausnamiðaður, hefur áhuga á þróun ferla og býr yfir sterkri samstarfs- og leiðtogahæfni.
-
Stýra bókhaldsferlum, skattamálum og mánaðaruppgjörum í samræmi við íslensk lög, alþjóðlega reikningsskilastaðla og innri reglur Inchcape.
-
Mannaforráð yfir teymi bókara, þar á meðal leiðsögn, forgangsröðun verkefna og frammistöðumat.
-
Skila ársreikningum og lögbundnum skýrslum til stjórnvalda ásamt samskiptum við endurskoðendur.
-
Þróa og efla innra eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd þess í rekstri.
-
Halda utan um innri og ytri endurskoðun, tryggja skilvirkt innra eftirlit og að samræmdum verklagsreglum sé fylgt.
-
Annast skattaskil, m.a. virðisaukaskatt og tekjuskatt og fylgja eftir breytingum á lögum.
-
Veita stjórnendum ráðgjöf og upplýsingar um breytingar á skattalöggjöf, reikningsskilareglum eða aðra þætti sem hafa áhrif á fjármál og reikningsskil.
-
Viðhalda og efla samskipti við stjórnendur samstæðunnar.
-
Þekking og reynsla af uppgjörum samkvæmt alþjóðlegum og íslenskum reikningsskilareglum.
-
Viðeigandi menntun, svo sem í viðskiptafræði og/eða meistaragráða í endurskoðun og reikningsskilum; löggilding í endurskoðun er mikill kostur.
-
Yfirgripsmikil þekking og reynsla af vinnu við bókhald og uppgjör.
-
Þekking á íslenskum skattalögum.
-
Reynsla af samstarfi við endurskoðendur og góð þekking á innra eftirliti.
-
Skipulagshæfni, nákvæmni og hæfni til að leiða umbótaverkefni.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Af hverju að vinna með okkur?
Hjá okkur færð þú tækifæri til að gegna lykilhlutverki í rekstri öflugra fyrirtækja og taka þátt í spennandi verkefnum í alþjóðlegu umhverfi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, traust og samvinnu og viljum skapa vinnustað þar sem fólk fær svigrúm til að hafa áhrif, þróast í starfi og ná árangri saman.
Við bjóðum:
-
Tækifæri til að leiða áframhaldandi þróun reikningshalds- og fjármálastarfs fyrirtækjanna til framtíðar.
-
Áhrifamikið lykilstarf með víðtæka ábyrgð og tækifæri til að móta verklag og ferla.
-
Samstarf við öflugt stjórnendateymi hér á landi og sérfræðinga innan alþjóðlegrar Inchcape-samstæðu.
-
Fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem fagleg þróun og umbætur eru í stöðugum fókus.
-
Sterka liðsheild og alþjóðlegt starfsumhverfi.
-
Fjölskylduvænan vinnustað þar sem velferð og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi.
-
Samkeppnishæf kjör og góð starfstengd fríðindi.
-
Líftryggingu fyrir allt starfsfólk.
-
Tækifæri til starfsþróunar innan alþjóðlegs fyrirtækis sem er leiðandi á sínu sviði.
Enska
Íslenska






