Sjómannadagsráð
Sjómannadagsráð
Sjómannadagsráð

Fjármálastjóri

Langar þig að leiða fjármál einnar stærstu og fjölbreyttustu velferðarsamstæðu landsins?

Sjómannadagsráð óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan fjármálastjóra til að leiða fjármálastarfsemi umfangsmikillar samstæðu þess. Um er að ræða lykilstöðu einnar stærstu öldrunarþjónustu landsins, með starfsemi á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.

Samstæðan er með um 2000 starfsmenn og rekur hún sjö hjúkrunarheimili í fimm sveitarfélögum, fasteignafélög og Happdrætti DAS. Eignasafnið nær yfir 100.000 fermetra og samanstendur af hjúkrunarheimilum og þjónustumiðstöðvum og 350 leiguíbúðum fyrir eldri borga.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem nær allt frá rekstri hjúkrunarheimila og íbúðafélaga yfir í fasteignaþróun, fjárfestingar og rekstur happdrættis innan traustrar og öflugrar samstæðu með ríflega 90 ára sögu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á fjármálum samstæðunnar og tryggir skilvirka fjárhagslega stjórnun og eftirlit.
  • Stýrir gerð fjárhags-, rekstrar- og langtímaáætlana í samstarfi við stjórnendur.
  • Ber ábyrgð á bókhaldi, samstæðuuppgjörum, mánaðarlegum uppgjörum ásamt framsetningu fjárhagsupplýsinga.
  • Ber ábyrgð á lausafjárstýringu, fjármögnun, samskiptum við fjármálastofnanir og ávöxtun fjármuna félagsins.
  • Tryggir áreiðanleika fjárhagsupplýsinga og að reikningsskil séu í samræmi við lög og reglur.
  • Annast reglubundna greiningu á rekstri, afkomu og sjóðstreymi
  • Ber ábyrgð á launavinnslu
  • Virk þátttaka í framtíðaruppbyggingu sem nemur tugum milljarða króna á næstu árum.
  • Náið samstarf við stjórn, framkvæmdastjórn og lykilstjórnendur um stefnumótun, fjármögnun, fjárhagslega greiningu og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, endurskoðunar eða sambærilegra greina.
  • Umfangsmikil reynsla af fjármálastjórnun, reikningshaldi, fjárhagsáætlanagerð og rekstrarstjórnun.
  • Góð færni í notkun á helstu upplýsingatæknilausnum og áhugi á að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Góð þekking og reynsla af samstæðuuppgjörum og gerð ársreikninga.
  • Reynsla af fjármögnun, lausafjárstýringu og samskiptum við fjármálastofnanir.
  • Greiningarhæfni og geta til að vinna úr flóknum fjárhagsupplýsingum og miðla þeim á skýran og markvissan hátt.
  • Reynsla eða góð geta til að koma að uppbyggingu, greiningu og þróun mönnunar- og rekstrarmódela fyrir stórar starfseiningar.
  • Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp sterka liðsheild.
  • Heiðarleiki, drifkraftur og jákvætt viðmót.
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma: 511-1225.

Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brúnavegur 9
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.SjóðsstreymiPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar