KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja

KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 240 einstaklingar á 12 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja

Við leitum að metnaðarfullum ráðgjafa á sviði fjármála- og fyrirtækjaráðgjafar með hæfni og þekkingu til að ná framúrskarandi árangri fyrir viðskiptavini okkar. Viðkomandi verður hluti af öflugum hópi ráðgjafa hjá KPMG og fær tækifæri til að vinna með breiðri flóru fyrirtækja að fjölbreyttum og spennandi verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ráðgjöf í tengslum við kaup- og söluferli fyrirtækja.
  • Fjárhagslegar áreiðanleikakannanir.
  • Verðmat fyrirtækja, fasteigna og annarra fjármálagerninga.
  • Fjárhagsáætlanagerð, arðsemisgreiningar og aðstoð við fjármögnun.
  • Gagnavinnsla og greiningar á rekstri og fjárhag fyrirtækja.
  • Samskipti þvert á verkefnahópa innan sviðsins til að draga fram niðurstöður sem mæta væntingum viðskiptavina

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. meistaranám í viðskiptafræði, verkfræði eða hagfræði.
  • Að minnsta kosti tveggja ára starfsreynsla sem nýtist sem góður grunnur að ráðgjafarhlutverki á sviði fjármála- og fyrirtækjaráðgjafar.
  • Reynsla af reikningsskilum og fjárhagsgreiningum.
  • Góð samskiptahæfni og geta til að koma upplýsingum og gögnum á framfæri á skýran og skilvirkan hátt til viðskiptavina og samstarfsfólks.
  • Þekking á gagnagrunnstengingum og greiningum á stórum gagnasöfnum er kostur.
  • Góð tæknileg kunnátta og geta til að nýta stafrænar lausnir, þar á meðal gervigreind til greininga og lausnar viðfangsefna.
  • Sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
  • Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

Að vinna hjá KPMG

Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.

Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af og starfa með leiðandi sérfræðingum hjá KPMG hérlendis og erlendis.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2026

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum á [email protected]

Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austursíða 2, 603 Akureyri
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar