Landsnet
Landsnet
Landsnet

Forstöðumaður tækni og hönnunar

Leiddu tæknilega framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi

Landsnet leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.

Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka.

Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð.

Forstöðumaður tækni og hönnunar leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í þróun tæknilegra lausna, hönnunarforsendna og innleiðingu stafrænna tengivirkja fyrir flutningskerfi framtíðarinnar.

Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi sviðs Framkvæmda og eignastýringar og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og þróa teymi tækni og hönnunar
  • Móta stefnu, verklag og hönnunarforsendur fyrir flutningsmannvirki Landsnets
  • Leiða innleiðingu og þróun stafrænna tengivirkja
  • Leiða þróun mæla-, stjórn- og varnarbúnaðar í tengivirkjum
  • Veita tæknilega ráðgjöf og stuðning við framkvæmda- og rekstrarverkefni
  • Stuðla að stöðugum umbótum, nýsköpun og tæknilegri framþróun
  • Byggja upp árangursdrifna menningu, starfsþróun og samvinnu innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af tengdri starfsemi og þekking á raforkukerfum er kostur
  • Reynsla af stjórnun og þróun teyma
  • Færni og frumkvæði í að skapa og leiða öflugt sérfræðiteymi
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að leiða samstarf þvert á starfssvið
  • Hæfni til að styðja fólk til árangurs og byggja upp sterka liðsheild
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð hugsun í stjórnun starfsfólks og verkefna
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur5. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðás 7C, 700 Egilsstaðir
Rangárvellir 2, 603 Akureyri
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar