

Forstöðumaður nýsköpunar
Viltu skapa ný og græn tækifæri?
Við hjá Landsvirkjun vinnum markvisst að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu fyrir orkuskipti og almenna þörf samfélagsins á komandi árum. Við trúum á framþróun sem byggir á þekkingu, ábyrgð og nýjum lausnum sem auka verðmæti, hraða orkuskiptum og umbreyta samfélaginu.
Við leitum að kraftmiklum forstöðumanni til að leiða nýja deild nýsköpunar og öflugan hóp starfsfólks á sviði Vinds og jarðvarma. Deildin gegnir því hlutverki að gera ný græn orkutækifæri að veruleika í tengslum við nýtingu raforku og efnisstrauma frá aflstöðvum Landsvirkjunar.
Þú verður hluti af framsæknu teymi stjórnenda og færð tækifæri til að leiða metnaðarfullan hóp verkefnastjóra og sérfræðinga, með sjálfbærni, öryggi og vellíðan í fyrirrúmi.
Að okkar mati felst lausnin á loftslagsvandanum aðallega í:
-
aukinni endurnýjanlegri orkuvinnslu
-
minnkandi kolefnisspori framleiðslu vöru og þjónustu, með nýsköpun og bætta nýtingu að leiðarljósi
Þannig sköpum við verðmæti til framtíðar, betra samfélag og heilbrigt umhverfi.
Við hverju má búast?
-
Að gegna leiðtogahlutverki í teymi um nýsköpun tengda fjölnýtingu jarðvarma og annarra orkuauðlinda fyrirtækisins, orkulausnum og nýsköpun í innri ferlum fyrirtækisins
-
Að móta og hrinda í framkvæmd nýsköpunarverkefnum, stefnu- og áætlunargerð verkefnanna
-
Að móta og stýra samstarfi um nýsköpun við sveitarfélög, fyrirtæki, klasa og aðra aðila
-
Að taka þátt í framsæknu alþjóðlegu samstarfi í rannsóknum og þróun, með skýra áherslu á hagnýtingu þekkingar og verðmætasköpun
-
Að fá tækifæri til að vinna í nýsköpunarumhverfi með aðgang að sterkum innviðum, auðlindakerfum og sérþekkingu í verkefnum sem hafa áhrif á orkuskipti
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?
-
Sterka leiðtogafærni og framúrskarandi samskiptahæfni, ásamt reynslu af stjórnun og uppbyggingu teyma
-
Framhaldsnám og hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi, t.d. á sviði raunvísinda eða verkfræði
-
Mikla sköpunargleði og skipulagshæfni
-
Reynslu af því að leiða, stuðla að eða styðja við nýsköpun og þróunarverkefni
-
Ríkan samstarfsvilja, lausnamiðaða hugsun og vaxtarviðhorf
-
Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun er leiðandi afl í orkuskiptum á Íslandi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í teyminu okkar færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif og móta framtíð orku, atvinnulífs og samfélags. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað vekur áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á [email protected]
Íslenska
Enska


