

Forstöðumaður verslana Símans
Síminn leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að leiða verslanir Símans. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi mun bera ábyrgð á rekstri, vöruframboði og áframhaldandi þróun verslana og vefverslunar Símans. Viðkomandi mun leiða öflugt teymi verslunarstjóra og gegna lykilhlutverki í að þróa verslunarstarfsemi félagsins til framtíðar, efla upplifun viðskiptavina og tryggja framúrskarandi árangur í sölu og þjónustu.
Starfið heyrir beint undir framkvæmdastjóra einstaklingssviðs og felur í sér náið samstarf við stjórnendateymi Símans.
- Móta og innleiða árangursdrifna stefnu sem sameinar þjónustugæði, söluárangur og stöðugar umbætur
- Ábyrgð á rekstri og afkomu verslana Símans
- Leiða umbætur, þróunarverkefni og breytingar með skýrri markmiðasetningu, mælikvörðum og eftirfylgni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Umfangsmikla reynslu af rekstri verslana eða annarri sölu- og þjónustudrifinni starfsemi
- Sýndan árangur af rekstri, stefnumótun og innleiðingu breytinga
- Umtalsverða reynslu í að leiða teymi, byggja upp árangursdrifna menningu og ná settum markmiðum
- Sterkan viðskiptaskilning ásamt framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Námsstyrkir
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Gleraugnastyrkur
Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Við leggjum áherslu á að veita einstaklingum og fyrirtækjum framúrskarandi lausnir byggðar á fyrsta flokks tækni með hraða, öryggi og þjónustu að leiðarljósi. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta jákvætt, árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2026.
Sótt er um starfið á vef Símans. Nánari upplýsingar veitir [email protected]
Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Íslenska










