
Rekstrarstjóri
Fagraf ehf. óskar eftir að ráða öflugan rekstrarstjóra til að sinna daglegum rekstri fyrirtækisins. Félagið sérhæfir sig í öllum gerðum raflagna og hefur um áraraðir þjónustað fyrirtæki í margvíslegum rekstri, stór sem smá.
Rekstrarstjóri starfar í nánu samstarfi við eigendur og lykilstjórnendur og ber meðal annars ábyrgð á skipulagningu og framvindu verkefna, þar á meðal gerð tilboða og eftirfylgni.
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga með skýra sýn og haldbæra reynslu af rekstri til að stýra fjölbreyttum og góðum hópi starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýra daglegum rekstri félagsins
- Ábyrgð á áætlanagerð og kostnaðareftirliti
- Umsjón með stefnumótun, markmiðasetningu og áætlanagerð
- Undirbúningur, gerð tilboða og eftirfylgni
- Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og lykilhagsmunaaðila
- Yfirumsjón með mannauðsmálum félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta-, tækni- eða verkfræði
Reynsla af rekstri og stjórnun - Reynsla af samningagerð og gerð útboðsgagna er kostur
- Leiðtogahæfileikar og sterk framtíðarsýn
- Reynsla af sambærilegum iðnaði er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð færni í íslensku og ensku
Um Fagraf ehf:
Fagraf var stofnað árið 2001 og hefur allt frá upphafi lagt megináherslu á vönduð vinnubrögð og faglega þjónustu. Á þeim tíma höfum við byggt upp víðtæka þekkingu á sviði raf- og tölvulagna. Við nálgumst öll verkefni af öryggi og fagmennsku. Nánari upplýsingar má finna á www.fagraf.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
Enska
Íslenska










