

Þjónustustjóri Hygge kaffihúsanna
Ert þú næsti þjónustustjóri Hygge?
Hjá Hygge snýst allt um notalega stemningu, hlý augnablik og dásamlegt handverk. Við rekum þrjú kaffihús í Reykjavík ásamt eigin bakaríi þar sem allt er bakað ferskt á hverjum einasta degi. Við erum í miklum vexti og leitum að skipulögðum, jákvæðum og drífandi þjónustustjóra til að ganga til liðs við stjórnendateymið okkar!
Um nýtt og spennandi hlutverk er að ræða. Þú verður hjartað í daglegum rekstri og brúar bilið á milli daglegrar þjónustu og stefnu fyrirtækisins. Starfið er dásamlega fjölbreytt og skiptist á milli þess að vera í svuntunni á gólfinu með teyminu og að sinna stjórnunarverkefnum.
-
Sinna þjónustu á kaffihúsunum og styðja vel við teymið á álagstímum.
-
Umsjón með vaktaplani, ráðningum og móttöku ásamt þjálfun á nýju starfsfólki.
-
Tryggja að upplifun gesta, kaffið, bakkelsið og útlit staðanna sé alltaf til fyrirmyndar og til samræmis á öllum kaffihúsunum.
-
Aðkoma að markaðsmálum og skipulagning á skemmtilegu efni fyrir samfélagsmiðla.
-
Aðstoð við framkvæmdastjóra við fjölbreytt og skapandi verkefni eftir þörfum.
- Reynsla úr kaffihúsa- eða veitingageiranum og ástríða fyrir framúrskarandi þjónustu.
-
Smitandi jákvæðni, rík þolinmæði og hæfni til að mæta gestum og samstarfsfólki af hlýju.
-
Framúrskarandi skipulagshæfni og hæfni til að hvetja og leiða teymi áfram af krafti.
-
Góð almenn tölvukunnátta (t.d. fyrir vaktaplön, kerfi og samfélagsmiðla).
-
Gott vald á bæði íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










