
Launafl
Launafl er öflugt iðnfyrirtæki sem býður uppá fjölbreyttar lausnir og þjónustu á Austurlandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns með víðtaka menntun og reynslu. Deildir fyrirtækisins eru átta talsins: Vélaverkstæði, byggingardeild, blikkdeild, pípulagnir, verslun/Lager, tæknideild og tvö rafmagnsverkstæði.
Framkvæmdastjóri
Launafl leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að taka við sem framkvæmdastjóri félagsins.
Við leitum að einstaklingi með reynslu af rekstri og stjórnun, sterka leiðtogahæfni og getu til að leiða fjölbreytta starfsemi. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og gegnir lykilhlutverki í að móta og fylgja eftir markmiðum þess í samstarfi við stjórn, starfsfólk og samstarfsaðila.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í öflugu fyrirtæki með reynslumikið starfsfólk og góðan starfsanda. Starf framkvæmdastjóra krefst búsetu á svæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðir stefnumótun og þróun félagsins í samstarfi við stjórn.
- Ábyrgð á daglegum rekstri félagsins.
- Ábyrgð á fjárhag, áætlanagerð og eftirfylgni.
- Ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra hagaðila.
- Tryggir skilvirka verkferla og góða nýtingu fjármuna og annarra rekstrarauðlinda.
- Stuðlar að öflugum starfsanda og góðu samstarfi innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri.
- Góð þekking og reynsla á fjármálum og áætlanagerð.
- Framúrskarandi leiðtoga-, samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna að fjölbreyttum verkefnum og forgangsraða þeim.
- Góð færni í íslensku og ensku.
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hraun 3, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Branch Operations Manager
Indie Campers

Framkvæmdastjóri reksturs og þróunar
Vínbúðin

Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Sviðsstjóri aðgerðarsviðs Rauða krossins á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
Skógræktarfélag Íslands