
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Lundarskóli: Deildarstjóri forvarna- og frístundamála grunnskóla
Laus er til umsóknar ótímabundin 100% staða deildarstjóra forvarna- og frístundamála í Lundarskóla á Akureyri. Ráðið verður í stöðuna frá 15. ágúst 2026 eða skv. samkomulagi.
Deildarstjóri leiðir forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í skólanum, veitir því faglega forystu, skipuleggur daglegt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf og stuðlar að framförum, árangri, velferð og vellíðan barna og unglinga. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Deildarstjóri hefur yfirumsjón með málaflokknum innan skólans og starfar í teymi frístundafulltrúa og félagsmiðstöðvafulltrúa við framgang og framkvæmd verkefna þar innan.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á starfsemi frístundar fyrir 1. - 4. bekk og skipuleggur störf starfsfólks frístundar í samstarfi við frístundafulltrúa.
- Ber ábyrgð á starfsemi félagsmiðstöðva skólans, annars vegar fyrir 5. - 7. bekk og hins vegar fyrir 8. - 10. bekk og skipuleggur starfið í samstarfi við félagsmiðstöðvafulltrúa.
- Hefur yfirumsjón með framkvæmd forvarnarmála innan stofnunar.
- Mótar og kemur til framkvæmdar starfsáætlun frístundar og félagsmiðstöðva.
- Sinnir daglegu starfi í frístund og félagsmiðstöð eftir því sem við á.
- Vinnur með börnum og unglingum að félagsfærni, jákvæðum samskiptum og sjálfstyrkingu, hvort sem er með einstaklingum eða hópum í samstarfi við frístunda- og félagsmiðstöðvafulltrúa.
- Veitir forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi í skólanum eftirfylgni og hefur forystu um þróun og umbætur á því sviði.
- Starfar með stoðteymi skóla að inngripum sem styðja við félags- og samskiptafærni með einstaklingum og hópum.
- Vinnur með fræðsluyfirvöldum í sveitarfélaginu, verkefnastjóra málefna barna- og unglinga og öðrum deildarstjórum málaflokksins um stefnumótun og ákvarðanatöku.
- Heldur utan um og stuðlar að samstarfi og teymisvinnu milli frístundar og félagsmiðstöðva innan síns skóla og milli skóla.
- Skipuleggur og stýrir teymisfundum í frístund og félagsmiðstöð.
- Tekur þátt í undirbúningi á fjárhagsáætlun skólans m.t.t. málaflokksins.
- Gætir að því að innkaup og mönnun málaflokksins falli innan fjárhagsramma.
- Tekur þátt í ráðningum starfsfólks frístundar og félagsmiðstöðvar
- Tryggir samstarf um verkefni og að veitt þjónusta sé í samræmi við markmið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegt (BA/BS/B.Ed).
- Viðbótarnám/diplóma á háskólastigi kostur.
- Nýleg og farsæl reynsla af vinnu með ungu fólki.
- Nýleg og farsæl reynsla af starfi við forvarnir og fræðslu.
- Nýleg og farsæl reynsla af frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
- Þekking á þróun, straumum og stefnum í forvarnarmálum, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
- Þekking á lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem um starfsemina gildir og hæfni til að leiða forvarna- og frístundastarf í samræmi við markmið og ákvæði laga.
- Reynsla af teymisstjórnun er æskileg.
- Hæfni til að leiða umbótamiðað forvarnastarf.
- Þekking og hæfni til að standa vörð um og stuðla að farsæld barna og unglinga.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Framtakssemi, frumkvæði og samskiptafærni.
- Vilji til þróunar og nýsköpunar.
- Metnaður til árangurs.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalsbraut/Lundarskóli 147482, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamviskusemiSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri geislameðferðardeildar
Landspítali

Deildarstjóri
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet

Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna
Landsnet

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Verkefnastjóri frístundar í Krikaskóla
Krikaskóli

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Aðstoðarforstöðumaður í frístundastarfi fatlaðra barna
Kringlumýri frístundamiðstöð

Leikskólinn Bjartahlíð
Leikskólinn Bjartahlíð

Félags- og samfélagsmiðlafulltrúi Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Deildarstjóri - Bríetartún
ungbarnaleikskóli - Bríetartún