
Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti leitar að kennara sem talar mjög góða íslensku og er starfið laust frá miðjum ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fullt starf.
Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum. Leikskólinn leggur áherslu á læsi og íslenskt mál auk þess sem Nóaborg er þátttakandi í Nordplus verkefni um hreyfingu leikskólabarna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
Kennsla og ummönnun leikskólabarna undir leiðsögn deildarstjóra
-Leyfisbréf kennara
-Sjálfstæð vinnubrögð
-Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
-Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.
-Hreint sakavottorð
-Reynsla af leikskólastarfi æskileg
-Faglegur metnaður og brennandi áhugi á starfi með börnum
-Frumkvæði í starfi
-36 stunda vinnuvika
-Sundkort
-Samgöngustyrkur
-Menningarkort
-Líkamsræktarstyrkur
-Frítt fæði
-Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna þegar börnin hafa náð eins árs aldri
Íslenska










