
Kringlumýri frístundamiðstöð
Frístundamiðstöðin Kringlumýri stendur fyrir viðamiklu frístundastarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 – 16 ára í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Starfsstaðir Kringlumýrar eru 15 samtals.
Aðstoðarforstöðumaður í frístundastarfi fatlaðra barna
Frístundaheimilið Gulahlíð starfrækir frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk Klettaskóla eftir að skóladegi líkur til kl. 17.00 ásamt því að vera með heila daga á skólafrídögum. Einnig er boðið upp á sumarstarf frá kl. 8.30 til 16.30. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð, heilbrigðan lífsstíl og félagslega virkni. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Halda úti fagstarfi fyrir börn og unglinga í Klettaskóla í samræmi við starfsmarkmið SFS, starfsáætlun SFS og starfsáætlun frístundamiðstöðvarinnar og tryggja jafna möguleika barna og unglinga í Klettaskóla til þátttöku í frístundastarfi borgarinnar.
- Umsjón með daglegri starfsemi Guluhlíðar í samvinnu við forstöðumann.
- Skipulagning frístundastarfsins í samráði við bæði börn og unglinga sem og starfsfólk.
- Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum og unglingunum.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
- Að veita starfsfólki leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
- Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar s.s. þroskaþjálfafræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Leyfisbréf þroskaþjálfa.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðum börnum og unglingum.
- Þekking og reynsla af málefnum frítímans.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að koma að og leysa erfið mál sem tengjast starfsfólki og /eða þjónustunotendum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir
Akureyri

Kennari óskast fyrir nemendur með annað móðurmál
Kópavogsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Skarðhlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi
Leikskólinn Hulduheimar

List- og verkgreinakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Grunnskólakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Leikskóli Húnabyggðar
Húnabyggð

Sérfræðingur með sértæka ábyrgð á frístundaheimilinu Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Frístundaþjónusta í Árborg

Leikskólinn Hjalli óskar eftir leikskólakennurum
Hjallastefnan