Kópavogsskóli
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli

Sérkennari á unglingastig óskast í Kópavogsskóla

Kópavogsskóli óskar eftir að ráða sérkennara.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum eru 420 frábærir nemendur og 75 kraftmiklir starfsmenn. Í Kópavogsskóla vinnum við eftir Uppeldi til ábyrðar.

Kópavogsskóli auglýsir eftir metnaðarfullum, sveigjanlegum og áhugasömum sérkennara á unglingastigi. Starfið felur í sér sérkennslu í íslensku og stærðfræði í 7. - 10. bekk. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026.

Starfið er til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í íslensku og stærðfræði
  • Skipulagning og aðlögun náms að þörfum nemenda 
  • Stuðningur við nemendur í daglegu skólastarfi í samstarfi við umsjónarkennara og fagteymi
  • Samvinna við foreldra og aðra fagaðila
  • Virk þátttaka í faglegu samstarfi og skólaþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Menntun eða reynsla í kennslu íslensku og stærðfræði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og skilningur á fjölbreyttum þörfum nemenda
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Reynsla af vinnu með nemendum með fjölbreyttan bakgrunn 
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
  • Starf í fjölbreyttu og styðjandi skólasamfélagi
  • Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á náms- og félagslega stöðu nemenda
  • Faglegan stuðning og möguleika á símenntun
Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar