
Málmsteypan
Málmsteypan er elsta starfandi endurvinnsla landsins og á sér yfir 80 ára sögu. Á þeim tíma hefur fyrirtækið þróast í takt við þarfir samfélagsins og er í dag eina járnsteypan á Íslandi og traustur samstarfsaðili í fráveitulausnum og innviðaverkefnum. Kjarnastarfsemi Málmsteypunnar er að bjóða heildarlausnir í fráveitu. Við flytjum inn og seljum rör, brunna og tengihluti sem standast íslenskar aðstæður og endast í yfir 100 ár, samhliða okkar eigin framleiðslu á hágæða steypujárnsvörum þar sem brotajárn sem fellur til hérlendis er endurunnið í endingargóðar vörur. Við störfum náið með verktökum, sveitarfélögum og byggingaraðilum um allt land og erum stolt af því að lausnir okkar liggi undir mörgum af stærstu framkvæmdum landsins. Sjálfbærni, áreiðanleiki og þjónusta eru leiðarljós okkar þegar við byggjum upp innviði framtíðar á Íslandi.

Tæknilegur söluráðgjafi
Málmsteypan leitar að metnaðarfullum og tæknilega sterkum söluráðgjafa til að taka ábyrgð á uppbyggingu og þróun hitaveituvöruflokks fyrirtækisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem unnið er bæði með sölu, tæknilega ráðgjöf og markvissa viðskiptaþróun í nánu samstarfi við viðskiptavini og birgja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með hitaveituvörum og markviss þróun vöruflokksins
- Tilboðsgerð, magntaka, yfirferð teikninga og verðútreikningar
- Samskipti við birgja, innkaup og eftirfylgni með vöruframboði
- Samskipti, ráðgjöf og heimsóknir til lykilviðskiptavina og annarra hagsmunaaðila
- Umsjón með pöntunum og afgreiðslu ásamt þjónustu til viðskiptavina
- Þátttaka í viðskiptaþróun, m.a. með bættu þjónustuferli, þróun vöruframboðs og leit að nýjum lausnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sterkur tæknilegur bakgrunnur sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði eða sambærilegt
- Góð þekking og skilningur á kerfum, teikningum og tæknilegum lausnum
- Reynsla af tilboðsgerð, kostnaðarmati eða sambærilegum verkefnum er kostur
- Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt að uppbyggingu vöruflokks
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Skipulagshæfni og drifkraftur í verkefnum
Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja
KPMG á Íslandi

Verkefnastjóri Byggingarframkvæmda
E. Sigurðsson

Photography Gallery - Sales Consultant
Iurie I Fine Art

Sérfræðingur í orkumiðlun
Landsvirkjun

Verkefnastjóri / sölumaður
Norðurstjarnan ehf.

Efnavara - sölumaður
Kemi ehf.

Sérfræðingur í viðskiptagreiningum
Landsnet

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet

Sölustjóri
Hyatt Centric Reykjavík

Vilt þú slást í hópinn? Við leitum af kraftmikilli sölumanneskju í 100% starf.
Mathilda

Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fjarðabyggð

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise á Akureyri?
Wise lausnir ehf.