Norðurstjarnan ehf.
Norðurstjarnan ehf.

Verkefnastjóri / sölumaður

Viltu taka þátt í uppbyggingu og vexti metnaðarfulls verktakafyrirtækis? Við leitum að öflugum og drífandi sölumanni / verkefnastjóra sem vill axla ábyrgð í fjölbreyttu og spennandi starfi á sviði utanhúsklæðninga. Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem hefur metnað til að hafa áhrif, móta verkferla og vera hluti af teymi þar sem hlutirnir gerast hratt. Fyrirtækið er í miklum vexti og við leitum að aðila sem vill ekki bara taka þátt í þeirri vegferð – heldur líka hafa raunveruleg áhrif á hana og þróa starfið með okkur til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með framvindu verkefna og daglega skipulagningu 
  • Umsjón með tímaskráningum og undirbúningi launaupplýsinga
  • Samskipti við viðskiptavini, verktaka og samstarfsaðila
  • Sala á þjónustu og tilboðsgerð
  • Innkaup á efni og samskipti við birgja
  • Umsjón með pöntunum og skipulag innkaupa fyrir verk
  • Útgáfa reikninga og umsjón með verkbókhaldi
  • Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun verkferla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynslu af verkefnastjórnun eða rekstri er æskileg
  • Kostur ef viðkomandi hefur bakgrunn í iðngrein 
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sölustarfi og/eða viðskiptatengslum er kostur
  • Þekking á verkbókhaldi og tímaskráningarkerfum er mikilvæg
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Melabraut 15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar