
Mi búðin
Mi búðin er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili fyrir snjalltækjaframleiðandann Xiaomi, einnig þekkt sem einfaldlega Mi.
Mi á Íslandi rekur Mi búðina ásamt Mi verkstæði, bæði staðsett í Ármúla 21.
Þó Xiaomi sé tiltölulega nýtt fyrirtæki þá hefur það skipað sér sterkan sess í tækniheiminum með áreiðanlegum tækjum á góðu verði. Frá árinu 2014 hefur Xiaomi verið einn af fimm stærstu farsímaframleiðendur í heiminum og stærsti farsímaframleiðandi í Asíu. Eitt vinsælasta rafmagnshlaupahjól landsins og þó víðar væri leitað er Mi Electric Scooter.

Sölufulltrúi í verslun
Mi búðin leitar að hressum, metnaðarfullum og jákvæðum sölufulltrúa í fjölbreytt og skemmtilegt starf. Um er að ræða fullt starf í sumar með möguleika á áframhaldandi hluta- eða fullu starfi eftir sumarið.
Mi búðin er spennandi starfsvettvangur með mikla möguleika fyrir réttan aðila til þess að vaxa og dafna með ört stækkandi fyrirtæki.
Vinnutími verður eftir samkomulagi en verslunin er opin á milli kl. 11-18 á virkum dögum og á laugardögum milli kl. 12-16.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiða viðskiptavini.
- Svara síma, tölvupóstum og samfélagsmiðlum.
- Afgreiða netpantanir.
- Halda verslun snyrtilegri.
- Taka á móti sendingum og skanna inn í kerfi.
- Tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi sölumennska og mannleg samskipti.
- Reynsla af sölustarfi æskileg.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Þekking á raftækjum og áhugi á tækninýjungum.
- Gott vald á íslenskri tungu, bæði í skrifuðu- og töluðu máli.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Gott skipulag.
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem enginn dagur er eins.
Möguleiki á vexti í starfi.
Öflugt starfsmannafélag.
Auglýsing birt13. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 21, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verslunarstjóri - Fullt starf
Joe & the juice

Þjónusturáðgjafi á bifreiðaverkstæði
Bílvogur

Starfsfólk óstakst
Ísfabrikan ehf.

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Verslunarstjórar - Öflugir leiðtogar - Höfuðborgarsvæðið
Ísbúð Huppu

Sölumaður
Gluggar og Garðhús

Starfsmaður Hobby & Sport í Kópavogi
Hobby & Sport ehf

Starfsmaður óskast í hlutastarf hjá Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó

Vátrygginga- og lífeyrisráðgjafi hjá Bayern Líf á Akureyri
Bayern líf

Sölustjóri
Hagar miðlar

Sundlaugarvörður (kona), framtíðarstarf
Akraneskaupstaður