Innrömmun Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó

Starfsmaður óskast í hlutastarf hjá Rammastúdíó

Rammastúdíó við Ármúla 20 leitar að öflugum starfsmanni til að sinna hlutastarfi. Starfið felur meðal annars í sér almenna afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini, sölu, létt smíða- og verkstæðisverkefni tengd rammagerð, móttöku og frágang verkefna, tiltekt og umhirðu vinnusvæðis, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum í daglegum rekstri.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og er tilbúinn að taka þátt í því sem þarf að gera hverju sinni. Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er handlaginn og hefur gaman af verklegum verkefnum
  • Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
  • Sýnir frumkvæði og vinnur sjálfstætt
  • Er samviskusamur, skipulagður og duglegur

Ekki er gerð krafa um sérstaka menntun eða reynslu. Núverandi framkvæmdastjóri sér um alla þjálfun og leiðsögn.

Starfið felur í sér vinnu hluta dags á laugardögum, afleysingar vegna fría og veikinda, sem og aðstoð á álagstímum þegar mikið er að gera. Um er að ræða hlutastarf sem hentar vel sem aukastarf með námi eða annarri vinnu.

Starfið er að jafnaði unnið á verktakagrundvelli nema umsækjandi óski eftir öðru fyrirkomulagi.

Boðið er upp á góð kjör fyrir réttan aðila. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og stutta kynningu á sjálfum sér ásamt upplýsingum um fyrri reynslu, ef við á.

Auglýsing birt11. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Ármúli 20, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar