

Húsasmiður
Húsasmiður óskast til starfa hjá Stuðlafell ehf.
Stuðlafell ehf. leitar að jákvæðum og metnaðarfullum húsasmið til starfa.
Um starfið
Helstu verkefni snúa að fjölbreyttum húsasmíði, t.d. innréttingar, útveggir, gólf og þök, ásamt viðgerðum og viðhaldi. Við leggjum áherslu á að starfsmenn geti tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum og unnið sjálfstætt sem og í teymi.
Um okkur
Stuðlafell ehf. er nýtt og kraftmikið fyrirtæki í byggingariðnaði sem sérhæfir sig í bæði smíði og rafvirkjun. Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, allt frá íbúðar- og atvinnuhúsnæði til stærri framkvæmdaverkefna og þjónustu.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, góða samvinnu og jákvætt starfsumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Sveinspróf í húsasmíði, eða í námi til sveinsprófs
-
Reynsla af fjölbreyttum smíðaverkefnum er kostur
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Af hverju Stuðlafell?
-
Næg verkefni fram undan
-
Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu ungs og spennandi fyrirtækis
-
Fjölbreytt verkefni og gott starfsumhverfi
Nánari upplýsingar um starfið fást með því að sækja um hér á vefnum – við hlökkum til að heyra frá þér!
Þök, útveggir, gluggar, gólf, innréttingar, ásamt viðgerðum og viðhaldi
Sveinspróf eða mikil reynsla í húsasmíði
Enska
Íslenska










