Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Húsasmiður á Keflavíkurflugvelli

Vilt þú tilheyra vinnustað þar sem sífelldar umbætur og þróun eru hluti af daglegu starfi?

Við hjá Isavia leitum að öflugum starfsmanni í almenna smíðavinnu og viðhald flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli (KEF). Starfið tilheyrir viðhaldsþjónustu og gegnir lykilhlutverki í að sinna viðhaldi á byggingunni ásamt ýmiskonar endurbótum. Lögð er áhersla á kerfisbundið viðhald, eftirlit og góða yfirsýn á ástandi byggingarinnar þar sem nýjar lausnir og þróun vinnubragða skipta máli.

Helstu verkefni:

  • Almenn smíðavinna
  • Viðhald og eftirlit eigna
  • Skráning viðhaldssögu
  • Styður við uppsetningu eigna
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í húsasmíði
  • Góð færni í að tileinka sér nýjar tæknilausnir og vinnubrögð
  • Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta

Starfsstöð Keflavíkurflugvöllur.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 22.júní 2026

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Herbert Jónsson, hópstjóri sérhæft viðhald, [email protected].

Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HúsasmíðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Smíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar