Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan
 Einingaverksmiðjan

Verkstjóri í framleiðslu á forsteyptum einingum - faglærður smiður

Einingaverksmiðjan óskar eftir reynslumiklum smið og verkstjóra til að verkstýra framleiðslu á forsteyptum steypueiningum. Starfið er unnið í nánu samráði við framleiðslustjóra, sem er næsti yfirmaður. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf þar sem reynsla af húsasmíði og verkstjórn er nauðsynlegt.

Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í og framleiðir forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp gríðarlega sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstjórn og skipulagning á framleiðslu í sal í samráði við framleiðslustjóra
  • Vinnur við framleiðslu á forsteyptum einingum. Vinnandi verkstjóri.
  • Umsjón með starfsfólki í framleiðslu, þjálfun og eftirlit
  • Tryggja að framleiðslan standist gæðakröfur sé í samræmi við teikningar
  • Tryggja að unnið sé samkvæmt öryggisreglum og áhættumati öllum stundum. Verkstjóri ber ábyrgð á að vinnuvernd sé fylgt á gólfinu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og ákvörðun yfirmanns hverju sinni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í húsasmíði skilyrði
  • Góð marktæk reynsla af sambærilegu starfi, móta- og steypuvinnu
  • Mjög góð hæfni og reynsla af lestri tækniteikninga 
  • Reynsla af verkstjórn eða verkefnastýringu í mannvirkjagerð eða iðnaði
  • Verkstjóranámskeið skilyrði. Ef ekki lokið, þarf viðkomandi að sækja námskeiðið fljótlega eftir að hefur störf
  • Vinnuvélaréttindi á lyftara (J) og brúkrana (C) kostur (annars tekið seinna)
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum ásamt sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta 
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
koparhella 5
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Smíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar