Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Grafarholt: Söluráðgjafi í timbursölu

Spennandi sumarstarf!

Við getum bætt við okkur kraftmiklum aðila í starf söluráðgjafa í fagsölu Húsasmiðjunnar í Grafarholti í sumar. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir þjónustu og fólki, er söludrifinn og hefur jákvætt hugarfar.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi sumar starf í lifandi umhverfi þar sem lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar og að vinna saman að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.

Starfið getur hentað t.d. nemendum í iðn – eða tæknifræði. Möguleiki er á áframhaldandi hlutastarfi í vetur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin hlutverk sölufulltrúa í fagsölu er ráðgjöf og þjónusta til fagaðila í góðri samvinnu við annað starfsfólk í fagsöluteyminu. Sölufulltrúi sér um tilboðsgerð fyrir einstaklinga og fagaðila.

Vöruflokkar sem söluráðgjafi þarf að þekkja eða afla sér þekkingar um eru t.d. timbur, plötur, festingar, einangrun, verkfæri. Við leitum að drífandi einstaklingi með jákvætt hugarfar sem hefur metnað og áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.

Starfið getur hentað t.d. nemendum í iðn – eða tæknifræði. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun s.s. tækni- eða iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er mikill kostur
  • Þekking á byggingamarkaðnum er kostur
  • Brennandi áhugi og reynsla af sölu og þjónustu
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Almenn tölvukunnátta
  • Sterk öryggisvitund
  • Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar.
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
  • Aðgangur að orlofshúsum.
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 1, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar