

Umsjónarmaður fasteigna
Um er að ræða nýtt starf hjá sveitarfélaginu sem fellst í umsjón fasteigna sveitarfélagsins. Við óskum eftir iðnmenntuðum starfsmanni sem getur framkvæmt og gert viðhaldsáætlanir, séð um samskipti við verktaka varðandi viðhald og nýframkvæmdir fasteigna. Gott væri ef viðkomandi hefði reynslu af slíku starfi, væri skipulagður, jákvæður og hefði frumkvæði.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eins fljótt og hægt er, eða eftir samkomulagi. Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Í samræmi við Jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru einstaklingar af öllum kynjum hvött til að sækja um starfið.
Umsóknafrestur er til og með 14. Júní. Umsóknum skal skilað á [email protected] Upplýsingar veitir Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis,-veitu- og framkvæmdasviðs í síma 455-2400 eða í gegnum tölvupóst á [email protected]
Umsjónarmaður fasteigna er starfsmaður umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs Húnaþings vestra og er sviðsstjóri hans næsti yfirmaður.
Umsjónarmaður fasteigna hefur umsjón með fasteignum sveitarfélagsins. Hann tekur út ástand þeirra og gerir viðhalds- og viðgerðaráætlun í samvinnu við sviðsstjóra.
Umsjónarmaður sinnir sjálfur einhverju viðhaldi og lagfæringum en kallar til iðnaðarmenn í samráði við sviðsstjóra þegar tilefni er til þess.
Umsjónarmaður mun að mestu sjá um samskipti við verktaka varðandi nýframkvæmdir og viðhald fasteigna.
Æskilegt er að umsjónarmaður fasteigna hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af sambærilegum verkefnum og reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf fasteigna er kostur.
Umsjónarmaður fasteigna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileika og færni til að eiga samskipti við þá starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra sem hann þarf að hafa samskipti við dagsdaglega.
Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Í samræmi við Jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru einstaklingar af öllum kynjum hvött til að sækja um starfið.
Íslenska










