JBT Marel
JBT Marel
JBT Marel

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði.

Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samsetningu fjölbreyttum vigtarbúnaði og ýmsum rafbúnaði (t.d. iðntölvur, skynjarar og skjáeiningar)

  • Uppsetning á hugbúnaði, stillingar og prófanir ásamt frágangi fyrir útflutning

  • Möguleiki á starfsþróun í sérhæfð verkefni eins og samsetningu á röntgenskynjurum og frumsannprófanir á löggildanlegum vogum 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun (eða haldbær reynsla í faginu) 

  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

  • Góð enskukunnátta í rituðu máli

  • Mjög góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun

  • Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu

  • Góð öryggisvitund, samviskusemi og metnaður

  • Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun

  • Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum) 

Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar