
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sundlaugarvörður (kona), framtíðarstarf
Akraneskaupsstaður auglýsir eftir starfsmanni til starfa í íþróttamannvirkjum, m.a. við klefagæslu í kvennaklefa og sundlaugarvörslu. Um 100% starf er að ræða. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna á Akranesi.
Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, sveigjanleika og þjónustulund.
Viðkomandi þarf að vera 19 ára eða eldri.
Um vaktavinnu er að ræða og unnið er bæði morgun, kvöld og helgar. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í sumar/haust.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sundlaugargæsla
- Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu
- Almenn afgreiðsla
- Almenn þrif í mannvirkjunum
- Taka á móti, leysa úr og/eða koma áfram þeim ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stundvísi, jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna
- Reynsla af þjónustustörfum kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð íslensku kunnátta
- Umsækjandi þarf að fara á námskeið í skyndihjálp
- Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
- Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Jaðarsbakkar 1, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniSamviskusemiSkyndihjálpStundvísiSundÞjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur.
Nettó

Sölufólk óskast í verslanir okkar
NTC ehf

Sundlaugarvörður, tímabundið starf
Akraneskaupstaður

Erum við að leita að þér?
The House of Beauty

Næturvörður óskast / Night guard wanted, 360 Hótel Selfoss
360 Hótel

Hlutastörf í hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates

KFC í borginni
KFC ehf.

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
ÍSBAND verkstæði og varahlutir

Þjónustufulltrúi
Efling stéttarfélag

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Aðstoðarmanneskja í mötuneyti
Embla Medical | Össur