Hagar miðlar
Hagar miðlar

Sölustjóri

Hagar miðlar leita að metnaðarfullum og drífandi sölustjóra til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar og spennandi einingar innan Haga. Við leitum að öflugum einstaklingi sem hefur góðan skilning smásölu- og/eða heildsölumarkaði og brennandi áhuga á sölu, vexti og uppbyggingu viðskiptasambanda.

Hagar miðlar er ný og ört vaxandi eining innan Haga sem sérhæfir sig í þróun og sölu lausna á sviði smásölumiðlunar (e. retail media). Einingin vinnur náið með auglýsendum og birgjum að því að skapa áhrifaríkar auglýsinga- og kynningarlausnir fyrir vörumerki í gegnum fjölbreytta snertifleti innan verslana Haga.

Meðal miðla Haga miðla eru verslanir Bónus og Hagkaups um land allt, þar sem boðið er upp á fjölbreytt tækifæri til að ná til neytenda á kaupstundu og styrkja sýnileika vörumerkja.

Sölustjóri mun gegna lykilhlutverk í uppbyggingu og vexti Haga miðla ásamt því að þróa ný tekjutækifæri í ört vaxandi umhverfi smásölumiðlunar. Þetta er tækifæri fyrir skapandi og lausnamiðaðan einstakling að taka þátt í uppbyggingu á spennandi þjónustu Haga miðla.

Helstu verkefni

  • Leiða sölu auglýsingalausna Haga miðla
  • Drífa áfram tekjuvöxt og ná metnaðarfullum sölumarkmiðum
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við lykilviðskiptavini og samstarfsaðila
  • Greina ný vaxtartækifæri og þróa nýjar lausnir og þjónustu
  • Vinna þvert á teymi innan Haga og dótturfélaga til að hámarka árangur og virði fyrir viðskiptavini

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur reynslu af sölustarfi og þá helst á sviði auglýsinga- eða miðlasölu
  • Hefur góða þekkingu á smásölu- og/eða heildsölustarfsemi
  • Hefur reynslu af uppbyggingu viðskiptasambanda og þróun nýrra tækifæra
  • Er skapandi og lausnamiðaður og hefur gaman að því að skapa virði fyrir viðskiptavini
  • Býr yfir góðri hæfni í samskiptum, kynningum og samningaviðræðum
  • Hefur frumkvæði, mikinn drifkraft og árangursmiðað hugarfar
  • Getur unnið sjálfstætt en einnig leitt samstarf þvert á ólík teymi

Við bjóðum

  • Spennandi hlutverk í uppbyggingu nýrrar rekstrareiningar í einu stærsta smásölufyrirtæki landsins
  • Einstakt tækifæri til að móta framtíð Haga miðla frá upphafi
  • Fjölbreytt verkefni og samvinnu við allar verslanir Haga
  • Gott starfsumhverfi og sterka liðsheild

Hagar miðlar eru vettvangur smásölumiðlunar (e.retail media) sem tengir birgja og auglýsendur við auglýsingalausnir verslana. Sérfræðingar Haga miðla aðstoða auglýsendur við val á miðlum til að tryggja rétt skilaboð, á réttum tíma, á réttum stað.

Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí næstkomandi. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Sesselía Birgisdóttir forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum ([email protected]).

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Holtavegur 10, Holtagörðum
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar