
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Við önnumst verkefni á borð við byggingar, virkjanir, álversframkvæmdir og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúargerðar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Tæknimaður
Viltu taka þátt í stórum og krefjandi framkvæmdum með einu stærsta og framsæknasta verktakafyrirtæki landsins? Hjá Ístaki leggjum við metnað í að byggja upp innviði framtíðarinnar í kraftmiklu, öruggu og lausnamiðuðu umhverfi.
Við leitum að öflugum tæknimanni sem vill setja mark sitt á spennandi verkefni og starfa með framúrskarandi teymi þar sem öryggi og gæði eru ávallt í fyrirrúmi.
Sem tæknimaður hjá Ístaki starfar þú á verki eða í þjónustudeild og gegnir lykilhlutverki í því að viðhalda kröfum og áætlunum á framkvæmdatíma. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem markmiðið er að hámarka hagkvæmni við framkvæmdir og nýta auðlindir með sem bestum hætti, í nánu samstarfi við verkstjórnendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Magntaka og rýni verkgagna með tilliti til tæknilegra úrlausna og tilboðsgerðar.
- Gerð verkáætlana, skipulagning framkvæmda og gerð vinnuteikninga.
- Upplýsingagjöf til verkkaupa, þátttaka í verkfundum og samskipti við eftirlitsaðila.
- Eftirlit með undirverktökum, rýni á samningum og sannreyning framvindureikninga.
- Innkaup, gerð innkaupaáætlana og eftirlit með gæðum vara í samráði við innkaupadeild.
- Útreikningar, utanumhald á aukaverkum og aðstoð við áætlanagerð mannaflaþarfar.
- Gerð, uppfærsla og eftirfylgni áætlana um öryggi, heilsu, umhverfi og gæðastjórnun á verkinu.
- Ábyrgð á gæðum þeirra verkefna sem unnin eru og virk þátttaka í öryggis- og vinnuverndarmálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í verkfræði eða skyldum tæknigreinum.
- Starfsreynsla úr verkfræði eða byggingariðnaði er mikill kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og áreiðanleiki.
- Sjálfstæð vinnubrögð og nákvæmni.
- Góð enskukunnátta er áskilin, íslenskukunnátta er kostur.
- Frumkvæði og jákvætt viðhorf til öryggis- og vinnuverndarmála.
Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Tæknimaður við myndun fráveitulagna
Stíflutækni

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Tæknimaður
Hegas ehf.

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf