

Verkefnastjóri Byggingarframkvæmda
Við hjá E. Sigurðsson byggingarfélagi óskum eftir ábyrgðarfullum og vandvirkum verkefnastjóra með reynslu af byggingarrekstri eða byggingarvinnu til að ganga til liðs við framsækið fyrirtæki á sviði byggingarlausna.
E. Sigurðsson hefur verið starfandi í 19 ár og vegna fjölda verkefna sem bíða okkar viljum við fá fleiri í lið með okkur til þess að takast á við ný og spennandi verkefni. Hjá fyrirtækinu starfa á fjórða tug starfsmanna og er megináherslan lögð á fagmennsku og gott starfsumhverfi.
Sem verkefnastjóri hjá E. Sigurðsson berð þú ábyrgð á tæknilegri útfærslu og framgangi verkefna fyrirtækisins. Starfið byggir á sterkum tæknilegum grunni en felur jafnframt í sér aukna ábyrgð á stjórnun starfsfólks, gæða- og öryggismálum, sem og eftirliti með umfangsmiklum verkþáttum þar sem gæðakröfur standist og að verk skili sér sakvæmt áætlun.
- Verkefnastjórnun
- Undirbúningur og stjórnun verkefna
- Umsjón með fjármálum verkefna, þ.m.t. áætlanagerð, eftirfylgni og gerð vinnuskýrslna
- Tilboðs- og samningagerð
- Eftirlit með undirverktökum, rýni á samningum og sannreyning framvindureikninga
- Hönnunarrýni verklýsinga og teikninga
- Gæðastýring, verkeftirlit og úttektir
- Ábyrgð á gæðum og öryggi þeirra verkefna sem falin eru og frumkvæði að jákvæðri öryggismenningu.
- Samskipti við birgja og verkkaupa/ eftirlitsaðila
- Farsæl reynsla af verkefnastjórn við byggingaframkvæmdir mikill kostur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. verk-, tækni-, eða byggingafræði eða tæknifræðimenntun
- Áreiðanleiki, nákvæmni vönduð vinnubrögð
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Góð tök á íslensku og ensku
- Framúrskarandi tölvukunnátta, Excel, Microsoft 365 og OneDriveShare-Point
Íslenska
Enska










