Intellecta ehf
Intellecta ehf

Bókari

DFK Endurskoðun óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf bókara. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Færsla fjárhagsbókhalds og gerð reikninga
  • Afstemmingar og undirbúningur fyrir uppgjör
  • Samskipti við starfsfólk og viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni í bókhaldi


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og góð þekking á bókhaldi, afstemmingum og launaútreikningum
  • Góð almenn tölvukunnátta og góð færni í Excel
  • Reynsla af DK bókhaldskerfinu er kostur
  • Samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Lausnamiðuð hugsun, góð samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
  • Sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Hæfileiki til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð


Um fyrirtækið:

DFK Endurskoðun er rótgróið endurskoðunarfyrirtæki sem hefur starfað frá árinu 1986 og er staðsett í Skipholti í Reykjavík. Fyrirtækið veitir persónulega og faglega þjónustu og býður heildstæðar lausnir á sviði reikningsskila, endurskoðunar, skattamála og rekstrarráðgjafar.

Umsóknarfrestur er til og með 27. júlí 2026 en unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt9. júlí 2026
Umsóknarfrestur27. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skipholt 50D, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar