

Aðalbókari sveitarfélagsins Skagastrandar
Leitað er að áhugasömum og vandvirkum aðalbókara til starfa fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd. Á skrifstofunni starfa þrír starfsmenn að sveitarstjóra meðtöldum og er um að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsmaður hefur yfirumsjón með bókhaldi sveitarfélagsins og stofnana þess, sinnir reikningagerð, launavinnslu, afgreiðslu og þjónustu, auk annarra tilfallandi verkefna. Starfsmaður sinnir gerð ársreikninga og fjárhagsáætluna og veitir upplýsingar og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldgóð þekking og reynsla af bókhaldi er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta og færni í upplýsingatækni
- Þekking og reynsla af bókhaldskerfinu Dynamics 365 Business Central er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Auglýsing birt12. júlí 2026
Umsóknarfrestur18. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Túnbraut 1-3 1R, 545 Skagaströnd
Starfstegund
Hæfni
ÁrsreikningarFagmennskaFjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiLaunavinnslaMicrosoft Dynamics 365 Business CentralSamviskusemiSkipulagVandvirkniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í reikningshaldi
Festi

Innheimtufulltrúi
Hagvangur

Bókari
DFK Endurskoðun

Sérfræðingar í bókhaldi og uppgjörum
ODT

Skrifstofustjóri
Schindler

Verkefnisstjóri fjármála við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Uppgjörsaðili á bókhaldsstofu
Skýrslur og skil

Starf á Fjármálasviði
Torcargo

Finance Specialist
Dohop ehf.

Bókari
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Sérfræðingur
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Tæknilegur aðalbókari á Húsavík
Sessor