

Skrifstofustjóri
Hurðaskellir ehf óskar eftir að ráða skipulagðan, jákvæðan og ábyrgan einstakling í fjölbreytt starf skrifstofustjóra. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur góða reynslu af bókhaldi og fjármálum, vill vinna nálægt rekstri og hefur áhuga á að þróast áfram í breiðu og sjálfstæðu hlutverki.
Viðkomandi kemur að daglegum rekstri fyrirtækisins, bókhaldi, fjármálum og greiningum í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, stjórnendur og samstarfsfólk Hurðaskellis.
Hjá Hurðaskellir er öryggi, gæði og traust þjónusta í forgrunni. Hlutverkið er breitt og hentar einstaklingi sem kann vel við sig í smærra teymi, er tilbúinn að taka ábyrgð og hefur jákvætt viðhorf til breytinga, umbóta og fjölbreyttra verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri skrifstofu.
- Umsjón með daglegu bókhaldi og fjármálatengdum verkefnum.
- Vinna við mánaðaruppgjör, afstemmingar og fjárhagslegar skýrslur.
- Reikningagerð, viðskiptamannabókhald og lánadrottnabókhald.
- Aðstoð við áætlanagerð, fjárhags- og rekstrargreiningar.
- Þátttaka í innri úttektum, eftirfylgni og regluvörslu.
- Aðstoð við launatengd verkefni og utanumhald kostnaðar.
- Umsjón og eftirfylgni með skattamálum, innflutningi og tengdum verkefnum.
- Þátttaka í umbótaverkefnum, ferlaþróun og innleiðingu fjármálakerfa.
- Samskipti og samstarf við birgja erlendis.
- Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast fjármálum, rekstri og skrifstofuumsjón.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði fjármála, bókhalds, viðskiptafræði eða sambærileg reynsla.
- Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og almennum fjármálaverkefnum.
- Góð þekking á bókhaldsreglum og íslensku rekstrarumhverfi.
- Góð færni í Excel og almennri tölvunotkun.
- Reynsla af fjármála- eða bókhaldskerfum er kostur, Þá einna helst Dk.
- Góð greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og rík ábyrgðartilfinning.
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti. Skemmir ekki fyrir ef einstaklingur er með hæfni í pólsku.
- Jákvætt viðhorf til breytinga, þróunar og fjölbreyttra verkefna.
Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Selfoss V , 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT ehf.
ECIT ehf.

Finance: Storekeeper
The Reykjavik EDITION

Bókhalds og skrifstofustarf.
Nautafélagið ehf.

Office Administrator
The Beluga Operating Company ehf.

Aðstoðarverkstjóri í flutningum á forsteyptum einingum
Einingaverksmiðjan

Fjármála- og stjórnsýslusvið - Launafulltrúi
Reykjanesbær

Aðalbókari sveitarfélagsins Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd

Sérfræðingur í reikningshaldi
Festi

Flokkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Innheimtufulltrúi
Hagvangur

Bókari
DFK Endurskoðun

Sérfræðingar í bókhaldi og uppgjörum
ODT