Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan
 Einingaverksmiðjan

Aðstoðarverkstjóri í flutningum á forsteyptum einingum

Einingaverksmiðjan leitar að aðstoðarverkstjóra á útilager fyrirtækisins. Viðkomandi fer ekki með bein mannaforráð, en vinnur með og verkstýrir flutningateymi á lagersvæði. Hann ber ábyrgð á að framfylgja settu verklagi, þjálfun nýrra starfsmanna í samstarfi við flutningastjóra og tryggja öryggi á vinnustaðnum. Skilyrði að viðkomandi hafi góða tækjareynslu, þá sérstaklega á lyftara.

Næsti yfirmaður er flutningastjóri, sem er starfandi verkstjóri.

Á lager fyrirtækisins fer fram varsla, flutningur og afhending á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í og framleiðir forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp mikla sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 75 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstýring: Vinnur með, stýrir og skipuleggur daglega vinnu starfsmanna á lagersvæði í samstarfi við flutningastjóra.  
  • Verkefnastýring: Sér til þess að starfsmenn hafi næg verkefni, þekki hlutverk sín og fylgi vinnuskipulagi (t.d. kaffi- og matartímum).
  • Þjálfun og fræðsla: Annast nýliðaþjálfun í samstarfi við flutningastjóra. Ber ábyrgð á reglulegri fræðslu um rétt vinnubrögð, öryggi og gæði á planinu.
  • Umgengni: Vinnur að stöðugum umbótum og sér til þess að umgengni á útisvæði sé til fyrirmyndar og í samræmi við reglur.
  • Flutningar: Umsjón með fermingu og affermingu á forsteyptum einingum.
  • Pantanir og móttaka: Tiltekt pantana á lagersvæði ásamt móttöku á vörum.
  • Lagerstörf: Almenn lagerstörf og skipulagning á geymslusvæðum úti.
  • Vélavinna: Starfsmaður stýrir Straddler farandkrana/Combilift (B-réttindi), lyftara (J-réttindi) og Mafi dráttarvagni (I-réttindi) við tilfærslur og hleðslu á einingum.
  • Öryggiseftirlit: Ber lagalega ábyrgð á því að starfsmenn á vinnusvæðinu vinni eftir gildandi öryggisreglum og noti réttan persónuhlífarbúnað.
  • Skráning atvika: Tryggir að öll næstum-slys, slys eða alvarleg frávik séu tilkynnt formlega (t.d. með tölvupósti) til flutningastjóra, sem fylgir málinu eftir í samstarfi við öryggis- og gæðastjóra
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vinnuvélraréttindi. B (farandkranar), I (dráttarvagnar/mafi) og J (lyftari undir 10 tonn)
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af stjórn vinnuvéla. Áhersla á mikla lyftarareynslu. 
  • Víðtæk reynsla af lagerstörfum og meðhöndlun á þungavöru
  • Reynsla af verkstjórn, hópstýringu eða verkstýringu á plani
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði 
  • Jákvætt viðmót, rík leiðtogahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð, fagleg, lausnamiðuð og mjög skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt13. júlí 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Koparhella 5
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar