

Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?
Umhverfis- og orkustofnun leitar að sérfræðingi til að stýra metnaðarfullu Evrópuverkefni sem styður innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi.
Um er að ræða sex ára LIFE-verkefni með þátttöku 17 samstarfsaðila, þar á meðal stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga. Verkefnið snýr að innleiðingu stefnu stjórnvalda Í átt að hringrásarhagkerfi. Markmið stefnunnar er að koma á öflugu hringrásarhagkerfi á Íslandi, draga úr úrgangi, auka endurvinnslu, minnka sóun og efla sjálfbæra neyslu og framleiðslu.
Í starfinu mun viðkomandi bera ábyrgð á daglegri verkefnastýringu, samhæfingu samstarfsaðila og eftirfylgni með verkefninu. Starfið felur meðal annars í sér að halda utan um verkáætlanir og framvindu, miðla upplýsingum, tryggja skil á gögnum og skýrslum til styrkveitanda og vinna náið með fjölbreyttum samstarfsaðilum innanlands og utan.
Starfið er í teymi hringrásarhagkerfis. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði úrgangsforvarna, úrgangsmála, umhverfismerkisins Svansins og sjálfbærrar neyslu og framleiðslu. Teymið vinnur að innleiðingu stefnu stjórnvalda um hringrásarhagkerfi í nánu samstarfi við atvinnulíf, sveitarfélög og aðrar opinberar stofnanir.
- Verkefnastýring LIFE-verkefnisins og samstarf um önnur verkefni á sviði hringrásarhagkerfis
- Samhæfa samstarf ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila verkefnisins, þar á meðal að skipuleggja fundi, vinnustofur og samráðsvettvang.
- Halda utan um aðgerðir, tímaáætlanir, markmið og framvindu verkefnsins
- Annast skýrslugjöf og samskipti við styrkveitandann
- Taka þátt í þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við hringrásarhagkerfi á Ísland
- Miðla árangri og framvindu verkefnisins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í umhverfisfræði eða umhverfisverkfræði
- Þekking á hringrásarhagkerfi og brennandi áhugi á málaflokknum er kostur.
- Reynsla af rekstri stórra verkefna, til dæmis Evrópuverkefna, er æskileg
- Reynsla af því að stýra hagaðilasamstarfi er kostur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir til árangurs
Íslenska
Enska










