
Síld og fiskur ehf - Ali
Síld og fiskur ehf. framleiðir og selur matvæli undir vörumerkinu Ali, sem er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerki landsins. Saga Síldar og fisks spannar áratugi og byggir á trausti, gæðum og nýsköpun. Arfur félagsins og ímynd vörumerkisins Ali er mikilvægur þáttur í velgengni fyrirtækisins á íslenskum matvörumarkaði sem einn stærsti framleiðandi landsins á afurðum unnum úr grísakjöti.
Fyrirtækið býr yfir öflugum og góðum tækjabúnaði sem tryggir stöðugleika og gæði í framleiðsluferlinu. Áhersla er lögð á strangar gæðakröfur, matvælaöryggi og skilvirkni í allri vinnslu. Jafnframt er markviss vöruþróun mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækisins, þar sem hlustað er á þarfir og væntingar neytenda með það að markmiði að bjóða upp á nýjar og spennandi vörur neytendum til hagsbóta.

Framleiðslustjóri
Síld og fiskur óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi framleiðslustjóra til starfa.
Um er að ræða fjölbreytt starf hjá rótgrónu félagi í vexti. Framleiðslustjóri ber ábyrgð á daglegri framleiðslustýringu, gerð framleiðsluáætlana, innkaupum, birgðastjórnun og eftirliti með þróun kostnaðarverðs.
Síld og fiskur framleiðir og selur vörur undir merkjum Ali sem er eitt þekktasta vörumerki landsins. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns.
Síld og fiskur er dótturfélag Langasjávar ehf. Félög í samstæðunni sérhæfa sig í framleiðslu og dreifingu á matvælum. Fyrirtækið vinnur markvisst að jafnréttismálum og stuðlar að vexti starfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð framleiðsluáætlunar í samráði við sölustjóra og framkvæmdastjóra
- Dagleg framleiðslustýring
- Kostnaðar og rekstrarstýring
- Birgðastjórnun og umsjón með framleiðslukerfi
- Umsjón með innkaupum á hráefnum og aðföngum ásamt samningagerð við birgja
- Ber ábyrgð á viðhaldi framleiðslutækja og nýfjárfestingum
- Tryggir að öryggis- og gæðamálum sé fylgt eftir
- Stjórnun og leiðtogahlutverk
- Leiðir umbótavinnu til að bæta öryggi, einfalda vinnubrögð og auka afköst
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
- Góð þekking og reynsla af aðfanga- og framleiðslustjórnun
- Reynsla af nýtingu upplýsingatækni í framleiðslu kostur
- Þekking á Lean kostur
- Skipulagshæfni og vandvirkni
- Lausnamiðuð hugsun, nákvæm og fagleg vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og ensku kunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Góð tölvukunnátta nauðsynleg
Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 9B, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldFrumkvæðiLeanLeiðtogahæfniVerkefnastjórnunVerkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður fasteignaumsjónar
Brynja leigufélag ses.

Bankastjóri Blábankans
Blábankinn

Ungur frumkvöðull leitar að hægri hönd
Sprotasamsteypa / fjárfestir

Skrifstofu- og rekstrarfulltrúi
Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi

Verkefnastjóri í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar
Reykjanesbær

Innkaupa- og aðfangakeðjustjóri
Climeworks

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti
COWI

Sérfræðingur í viðhaldsstjórnun / CMMS Specialist
atNorth

Project manager and Market Director for Infrastructure
COWI

Nýr Landspítali - Framkvæmdasvið - Verk-, tækni- og byggingarfræðingar
Nýr Landspítali ohf.

Skipulagsstjóri í kvikmyndaframleiðslu
STILL VIVID