
Reitir
Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun, umsýslu og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis á Íslandi. Við mótum framtíðina með sjálfbærri uppbyggingu og sterkum langtímasamböndum sem skapa ávinning fyrir leigutaka, fyrirtækið og samfélagið. Á sama tíma hlúum við að sögufrægum byggingum og stöndum vörð um íslenskan menningararf.
Hjá Reitum vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga að því að þróa lífleg borgarhverfi og tryggja vandaða umsjón með eignum. Í starfi okkar leggjum við áherslu á vellíðan, jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar – allt í takt við gildin okkar: jákvæðni, fagmennska og samvinna.
Reitir er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll Íslands og byggir á traustri arfleifð með skýra framtíðarsýn.

Verkefnastjóri nýframkvæmda
Reitir leita að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýframkvæmdir og vinna þvert á þróunar- og framkvæmdaverkefni félagsins. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk þar sem viðkomandi kemur að verkefnum frá hönnun og undirbúningi yfir í framkvæmd, eftirfylgni og afhendingu.
Við leitum að einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, sterka verkefnastjórnunarhæfni og metnað til að leiða stærri verkefni í samstarfi við starfsfólk félagsins, hönnuði, verktaka og aðra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn byggingaframkvæmda
- Eftirlit með verktökum og samstarf við birgja og undirverktaka
- Áætlunargerð, kostnaðareftirlit og eftirfylgni framkvæmda
- Áfangaúttektir og gæðaeftirlit
- Samskipti við hönnuði og aðra hagaðila
- Upplýsingamiðlun til framkvæmdastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði mannvirkjagerðar eða meistararéttindi í iðngrein.
- A.m.k. 5 ára reynsla af stjórnun framkvæmdaverkefna, helst hjá verktaka.
- Reynsla af hönnunarstjórnun æskileg.
- Byggingarstjóraréttindi er kostur.
- Reynsla af umhverfisvottunarferli er kostur.
- Skipulagshæfni, áreiðanleiki og nákvæmni.
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði.
Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur6. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður fasteigna
Háskólinn í Reykjavík

Rannsóknartæknir
BM Vallá

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Byggingatæknifræðingur
Verksýn

Aðstoðarmaður ráðgjafa viðhalds og mannvirkja
Verksýn

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Sérfræðingur í málefnum félagslegrar samræðu aðila vinnumarkaðarins og mannsæmandi starfa: Sect
EFTA Secretariat

Yngri byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
JTV ehf

Skipulags- og byggingarfulltrúi
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali

Sérfræðingur í neyðarvörnum
Rauði krossinn á Íslandi